Vanilla er undraefni og eitt hið alvinsælasta bragðefni í eftirréttum, kökum, drykkjum og víða notuð í annars konar matargerð. Einnig er hún mest notaða ilmefnið í snyrtivörur, ilmvötn og kerti svo dæmi séu tekin. Vanilla er ótrúlega öflug og kemur víða við. Hér gefur að líta nokkrar staðreyndir um vanillu og góð ráð hvernig má nýta vanillu.
- Nafnið vanilla er komið úr spænsku sem er smækkandi orðmynd af vaina: hylki, og vísar heitið til langra fræbelgja vanillunnar. Orðið er skylt latneska orðinu vagina sem þýðir sköp kvenna.
- Ef salatið, ávextirnir eða sósan eru of súr er gott ráð að setja örlítinn vanilluextra út í. Það jafnar bragðið og gefur sætan keim. Einnig er afar gott að setja vanillu út í tómatsósur til bragðbætis.
- Vanilla er einstaklega gott ýruefni, í alls konar krem, deig og rjómasósur til að gera áferðina mýkri og sléttari og bragðið jafnara.
- Vanilla er gott sætuefni út af fyrir sig og tilvalið að dreypa henni á ávexti, grænmeti og í salatdressingar. Hún dregur líka fram sætt bragð af öðru sem er þegar til staðar í matnum.
- Gott er að setja klofna vanillustöng út í flösku af ólífuolíu eða aðra góða olíu og nýta síðan olíuna til að snöggsteikja sjávarrétti eins og skelfisk, fuglakjöt eða rautt kjöt.
- Ef þú brennir þig á tungunni á heitum mat eða sterkum mat er gott að setja dropa af vanilluextrakt á tunguna til deyfingar.
- Ef þér finnst erfitt að borða chili ávexti vegna þess hversu sterkir þeir eru skaltu bæta svolítilli vanillu út í réttina sem innihalda chili. Vanillan slær á sterka bragðið en dregur sæta keiminn og bragðið fram í ávöxtunum.
- Vanilla er töfraráð til að fæla burt köngulær. Ef það eru köngulær á húsgögnunum þínum eða í híbýlum þínum sem eru að gera þér lífið leitt skaltu bæta við einni eða tveimur vanillu stöngum út í þrifklútana þína, efnin sem þú notar til að strjúka af húsgögnunum þínum eða gólfi. Með því slærðu tvær flugur í einu höggi, skordýrin forða sér og vanilluilmur svífur í loftinu.
- Vanilla hefur róandi áhrif og getur stillt kvíða. Það er því lag að hafa vanillustöng eða stangir í krukku í veskinu hvert sem farið er. Þegar þarf á að halda, róa andrúmsloftið, er vert að opna krukkuna og anda að sér ilminum.
- Ef þú vilt að fólk laðist að þér gæti verið ráð að nota vanilluilmvörur. Það er sagt að vanilluilmvörur hafi svipuð áhrif og ferómón.
- Litur getur sagt til um hvort vanilluextrakt er ekta. Ef hann er litlaus er hann ekki gerður úr ekta vanillu. Sama gildir ef hann er of dökkur. Hann á að vera hunangslitaður eða gulbrúnn. Þá er hann að öllum líkindum ekta.
- Helsta vísbendingin um hvort að ekta vanillu er að ræða eður ei er að hún er dýr en drjúg. Allra besti vanilluextraktinn kemur frá Veracruz í Mexíkó.
Loks má benda á að alkóhólmagn segir gjarnan til um hreinleika vanilluextrakts. Hann á helst að innihalda 35% alkóhól eða meira. Til eru þó blöndur sem eru úr ekta- og gervivanillu sem innihalda um það bil 25% alkóhól en þær eru ekki nærri því jafngóðar og munurinn finnst.