Erlendir ferðamenn eru loks farnir að streyma til landsins og það þýðir að listi yfir vinsælustu veitingastaði höfuðborgarinnar á ferðasíðunni Tripadvisor er farinn að taka verulegum breytingum. DV tók saman lista yfir tíu vinsælustu veitingastaðina á síðunni eins og undanfarin ár. Nokkur kunnugleg andlit eru á listanum og má þar allra helst nefna Old Iceland Restaurant sem hefur átt sæti á topp tíu listanum um árabil. Veitingastaðurinn hefur notið mikilla vinsælda hjá ferðamönnum frá ví við opnun í desember 2014.
Um fjölskyldustað er að ræða en það sem er einstaklega áhugavert er að eigendur staðarins, Páll Þórir Rúnarsson og Ólafur Þór Guðmundsson, eru einnig eigendur Reykjavík Kitchen en sá veitingastaður er í öðru sæti listans. Segja má að sú punkstaða sem DV valdi hafi verið óheppileg fyrir staðinn því nokkrum dögum fyrr var hann í toppsætinu. En það er vert að taka fram listinn breytist ört og skömmu áður en landið opnaði var staðurinn í toppsætinu ekki einu sinni á listanum.
Þessi grein miðast við hver staðan er að morgni 1. júlí 2021.
1. 101 Reykjavík Street Food, Skólavörðustígur 8, Reykjavík
2. Reykjavík Kitchen, Rauðárastígur 8, 101 Reykjavík
3. Icelandic Street Food, Lækjargata 4, 101 Reykjavík
4. Old Iceland Restaurant, Laugavegur 72, 101 Reykjavík
5. Fish&Co, Frakkastígur 25, 101 Reykjavík
6. Matarkjallarinn, Aðalstræti 2, 101 Reykjavík
7. Hi Noodle, Frakkastígur 9, 101 Reykjavík
8. Lamb Street Food, Grandagarður 7, 101 Reykjavík
9. Gallerý Fiskur, Nethylur 2, 110 Reykjavík
10. Fiskfélagið, Vesturgata 2a, Grófartorg, 101 Reykjavík