„Senn líður að áramótum og þegar ég fór að hugsa um hátíðlegan eftirrétt sem tekur ekki of langan tíma, datt mér í hug einfaldar, góðar bollakökur sem ekki ætti að vera erfitt að leika eftir. Til þess að gera þær aðeins öðruvísi en vanalega ákvað ég að setja smá kampavín saman við smjör-kremið. Á toppinn setti ég svo fallegar lakkrís konfektkúlur frá HR konfekti, en það kæmi einnig vel út að setja smá matar-glimmer eða annað skraut,“ segir Una Guðmundsdóttir matgæðingur DV.
Bollakökur
260 g hveiti
180 g sykur
6 msk. bökunarkakó
1 tsk. salt
1 tsk. matarsódi
3 egg
2 tsk. vanilludropar
160 ml olía
200 ml kalt vatn
Byrjið á að stilla ofninn á 180 gráður.
Þeytið saman egg og sykur þar til blandan verður létt og ljós.
Sigtið saman við blönduna kakó og flórsykur.
Blandið næst öllum hinum hráefnunum saman við og hrærið vel.
Setjið um 2 msk. í hvert form.
Bakið í um 16-18 mínútur.
Takið kökurnar út og leyfið þeim að kólna áður en kremið er sett á þær.
Vanillukrem með kampavínsbragði
500 g smjör (mjúkt)
500 g flórsykur2 tsk. vanilludropar
1 dl kampavín eða freyðvín
Hrærið saman smjör og flórsykur.
Bætið vanilludropum saman við. Bætið freyðivíninu saman við að lokum og hrærið varlega.
Það er frábært að setja krem-blönduna í sprautupoka og sprauta því fallega ofan á hverja köku og setja svo fallega konfekt-kúlu á toppinn