Matgæðingurinn Una Guðmundsdóttir á unabakstur.is hvetur lesendur til að bjóða í matarboð um helgina með þessum skotheldu uppskriftum.
Ananas- og karamelluostakaka
Hér er uppskrift að ferskri og sumarlegri ostaköku sem klárast án efa enda er karamellusósan algjört lostæti.
260 g Maryland-kex
30 g smjör
200 ml rjómi
170 g rjómaostur
2 tsk. vanilludropar
4-5 sneiðar ferskur ananas
Byrjið á því að mylja niður Marylandkex í matvinnsluvél, bræðið saman smjör í potti og hrærið kexblöndunni saman við áður en þetta er allt sett saman í form.
Þeytið rjóma vel.
Hrærið rjómaostinn sér svo að hann verði léttur og kekkjalaus. Blandið honum varlega saman við rjómann og vanilludropana.
Skerið niður þrjár sneiðar af ferskum ananas í fremur litla bita. Setjið þá saman við rjómaostablönduna og þeytið varlega í um 1 mínútu.
Hellið blöndunni yfir kexið í forminu.
Karamellusósa
80 g Dumle-karamellur
20 g smjör
Bræðið saman smjör og Dumlekaramellur í potti við vægan hita.
Leyfið karamellunni aðeins að kólna áður en hún er sett yfir kökuna.
Skreytið með ferskum ananas.
Spaghetti carbonara
Spaghetti carbonara hefur alltaf verið einn af mínum uppáhalds pastaréttum.
Ég hef gjarnan lent í vandræðum með að finna góða ljósa pastasósu en þessi er hins vegar einföld í framkvæmd og smakkast alltaf jafn vel. Fá hráefni og tiltölulega fljótgerður réttur.
400 g spaghetti
200 g beikonstrimlar
2 stk. hvítlauksrif
3 stk. egg
100 g parmaesanostur
Salt og pipar
Steinseljubúnt
Byrjið á því að sjóða spaghetti í vatni og olíu og gætið þess að salta vatnið vel.
Steikið saman á pönnu beikonstrimla og pressuð hvítlauksrif. Þeytið saman egg og rífið niður parmesanostinn í skál, saltið og piprið eftir smekk.
Þegar pastað er soðið er 1 dl af vatninu tekinn til hliðar áður en það er sigtað og sett á pönnu ásamt beikonblöndunni.
Steikið svo spaghettiblönduna og beikon og hvítlauksblönduna við vægan hita, slökkvið á hellunni og
blandið eggjablöndunni saman við og hrærið vel saman.
Þá er ekkert eftir nema að bera réttinn fram og finnst mér gott að strá bæði smá parmesanosti yfir og steinselju.