Mikið mæðir á nýjan eiganda Messans, Tómas Þóroddsson, þessa daganna. Fyrrum starfsmenn veitingastaðarins, sem unnu fyrir fyrri eiganda, segjast hafa verið snuðaðir um laun og hafa gengið hart fram gegn nýjum eiganda til að fá bót sinna mála. Meðal annars var veitingastaðnum lokað um helgina vegna mótmæla fyrrum starfsmanna. Tómas hefur bent á að hann hafi ekkert með meinta skuld fyrrum eigenda við starfsmenn að gera. Nú hafa fyrrverandi starfsmenn gefið út yfirlýsingu vegna málsins.
„Það eru nú komnir fjórir mánuðir síðan launin okkar, starfsfólk Messans, hefðu átt að vera greidd út. Veitingastaðurinn hefur núna verið seldur nýjum eiganda. Við fengum ekki aur úr þeirri sölu. Tómas Þóroddsson nýr eigandi staðarins er sáttur við að nýta nafn og góða orðspor Messans, sem við byggðum með vangoldnum launum vinnu okkar, en neitar að taka ábyrgð á á greiddum launum. Engin okkar, sem vann hörðum höndum við að gera Messann að frábærum stað og erum enn að bíða eftir laununum okkar, hefur verið boðið aftur í vinnu af nýjan eigandanum.“
„Ég ætla að heyra í honum[fyrrum eiganda] á morgun og fá upplýsingar um hvað hann ætli að gera í þessu máli. Ég skil reiði fólksins mjög vel en þykir leiðinlegt að þetta bitni á mér,“ sagði Tómas.
Eins sagði Tómas að hann hefði þegar ráðið fimm fyrrum starfsmenn staðarins að nýju.
„Yfirkokkurinn og yfirþjóninn störfuðu báðir hjá fyrri eigenda. Svo sóttu þrír aðrir um og ég endurréði þau líka, þannig þau eru fimm hér í vinnu hjá mér núna.“