Gamanleikarinn Þórhallur Sigurðsson, betur þekktur sem Laddi, hefur glatt landann í marga áratugi með gríni og glensi í sjónvarpsþáttum, kvikmyndum og auglýsingum, svo fátt eitt sé talið. Hann slær nú enn og aftur í gegn, í þáttaröðinni Jarðarförin mín á Sjónvarpi Símans. En hvað ætli einn ástsælasti leikari landsins borði á venjulegum degi?
„Ég fer yfirleitt á fætur klukkan 8.30 og fæ mér morgunmat sem er mjög fábrotinn. Akkúrat núna í samkomubanninu er ekki mikið að gera en ég les einu sinni í viku inn á teiknimyndir hjá Myndformi. Svo reyni ég að nota tímann til að mála myndir,“ segir Laddi.
Hann fylgir engu ákveðnu mataræði og segist borða nánast allt.
„Ég borða mikið kjúkling á ýmsu formi, og fisk, en ég reyni alltaf að borða hollan mat,“ segir Laddi. Hann segist ekki eyða miklum tíma í eldhúsinu en vera þó mjög liðtækur í þar, sérstaklega ef það á að vera indverskt. Uppáhaldsmáltíð hans er nefnilega indverskur matur með saffrangrjónum og spæsí kartöflum.
Þegar Laddi var í tökum fyrir þáttaröðina Jarðarförin mín breyttust matarvenjur hans sökum anna.
„Það var ein máltíð um miðjan dag, en það var reynt að hafa matinn hollan. Hann var keyptur svona héðan og þaðan, en yfirleitt gat maður valið hvort maður vildi fisk eða kjöt. Svo var það happa og glappa hvort manni fannst maturinn góður, en hann var aldrei vondur,“ segir Laddi og bætir við:
„Það var alltaf gefinn hálftími í mat, svo var alltaf hægt að ná sér í snarl á milli atriða, þar sem myndaðist bið.“
Morgunmatur:
Kaffi og ristað brauð með osti svo stundum set ég kavíar ofan á og stundum súrar gúrkur. Ég
nota gammeldags gurka, sem eru sænskar. Þær eru bestar.
Hádegismatur:
Borða yfirleitt á Krúsku, mjög hollur og góður matur.
Kvöldmatur:
Ekkert hefðbundið, bara létt og hollt. Laddi segir að indverskur réttur sé vinsælastur á sínu
heimili þessa stundina.
„En mín uppskrift er leyndó. Næstvinsælast er nautalund í pestósósu,“ segir hann og deilir þeirri uppskrift með lesendum.
800 g nautalund (4 x 200 g steikur)
3 msk. matarolía til steikingar
Salt og pipar
80 g parmesanostur (heill)
Aðferð:
4 msk. pestómauk, grænt
1 dl hvítvín, óáfengt (má sleppa
finnst mér)
2 dl kjúklingasoð (vatn og teningur)
200 g sykurbaunir (snjóbaunir)
8 msk. furuhnetur
2-3 stk. tómatar
2 dl rjómi
Salt og pipar
Pasta (tagliatelle)