Anna Guðný Torfadóttir hefur mikla ástríðu fyrir bæði andlegri og líkamlegri heilsu. Hún hefur nýlokið námi í heilsumarkþjálfun og heldur úti heimasíðunni heilsaogvellidan.com. Anna Guðný er með netnámskeiðið Endurnærðu þig og kennir þerapíuna Lærðu að elska þig. Hún hefur gefið út rafræna uppskriftarbók, Njóttu, og deilir einnig ljúffengum og hollum uppskriftum á síðunni sinni. Anna Guðný er einnig vegan og hefur verið það um nokkurt skeið.
DV vildi vita hvað heilsumarkþjálfi og matarbloggari borðar á venjulegum degi.
Hvernig er venjulegur dagur hjá þér?
„Flesta daga nýt ég þess að vera með litla stráknum mínum sem að er dýrmætasti ,,skóli’’ sem ég hef farið í. Við reynum að fara mikið út í náttúruna ásamt því að hafa dagana afslappaða og njóta núlíðandi stundar. Ég hef samt 2-3 daga í hverri viku til þess að sinna minni vinnu ásamt því að nýta kvöldin vel þegar að sonur minn sefur. Það er því enginn dagur eins hjá mér og dagarnir mjög fjölbreyttir sem að mér finnst mjög skemmtilegt,“ segir Anna Guðný.
Ertu búin að ákveða fyrir fram hvað þú ætlar að borða þann dag eða ferðu eftir tilfinningunni?
„Ég fer mestmegnis eftir tilfinningunni en huga þó að því að setja það í bleyti á kvöldin sem ég þarf næsta dag og það gæti t.d. verið möndlur, hafrar og baunir.“
Hvað hefurðu verið vegan lengi?
„Góð spurning. Ég man það ekki nákvæmlega því það gerðist algjörlega að sjálfu sér að ég missti lystina fyrir öllu því sem að ekki er vegan. En ég held að það séu að verða komin allavega tvö ár. En fyrir það var ég búin að taka rosalega mikið til í mataræðinu og var þá búin að taka út mjólkurvörur, glúten og unninn sykur.“
Hverjir eru uppáhalds vegan próteingjafarnir þínir:
„Ég elska hummus, chia fræ, kínóa, linsubaunir, hempfræ, möndlusmjör og hnetusmjör. Stundum geri ég mér súkkulaðisjeik með súkkulaðipróteinduftinu frá Pulsin, það er svindl gott.“
Morgunmatur:
Ég byrja daginn á því að fá mér vatn og fæ mér ekki að borða fyrr en kannski 2-3 tímum eftir að ég vakna. Mér finnst það gera mér mjög gott að kreista ½ sítrónu út í vatnið. Sellerísafi fylgir oftast fljótlega á eftir vatninu en það er eitthvað það besta sem ég geri fyrir mína heilsu og vellíðan að hafa hann með í morgunrútínunni. Ég er nýbúin að vera að standa í flutningum og datt hann þá út úr rútínunni og er ég búin að vera að „kreiva“ í hann síðan. Hann mun því fá að koma aftur inn í rútínuna enda algjör galdrasafi.
Sirka þremur tímum eftir að ég vakna fæ ég mér oftast grænan þeyting/chia graut/hafragraut/berjaþeytingsskál með múslí – það er mjög misjafnt og fer bara eftir í hvaða stuði ég er í og hvað líkaminn minn þarfnast hverju sinni.
Hádegismatur:
Ég reyni að elda alltaf það mikið í kvöldmat svo það sé afgangur í hádeginu daginn eftir. En ef ekki, þá baka ég oft það grænmeti sem ég á, sýð kínóa/hýðishrísgrjón og ber fram með kasjúsósu, fersku salati og avókadó.
Millimál:
Það fer voða mikið eftir því hvað ég fékk mér í morgunmat. Ef ég fékk mér ekki grænan þeyting í morgunmat þá verður hann oft fyrir valinu hér annars finnst mér gott að skera niður grænmeti og borða með hummus. Einnig er niðurskorið lífrænt epli með möndlusmjöri í miklu uppáhaldi hjá okkur mæðginunum ásamt því að setja fullt af frosnum ávöxtum í matvinnsluvél þannig að til verði ljúffengur ís.
Kvöldmatur:
Það fer oftast bara eftir því hvað til er í ísskápnum og í hvernig stuði ég er í. Ég elska t.d. að gera næringarmiklar súpur og pottrétti í stórum skömmtum til að geta fryst afganginn og átt til þegar að maður er ekki í stuði til að elda. En ef ég mætti ráða þá myndi ég borða mexíkanskan mat alla daga – það er eitthvað sem ég fæ aldrei leið á.
Anna Guðný deilir gómsætri uppskrift að súkkulaði próteinkúlum með lesendum.
Ef að döðlurnar eru frekar harðar þá mæli ég með því að leggja þær í bleyti yfir nóttu eða setja þær í heitt vatn í 20 mínútur. Helltu svo öllu vatninu af döðlunum og þerraðu þær aðeins áður en þú notar þær. Hafðu í huga að þú þarft sennilega minna af blautefnunum í uppskriftinni ef að þú bleytir döðlurnar.
Kúlurnar geymast best í kæli og mæli ég með að njóta þeirra beint þaðan. Gott er að hafa í huga að þær geymast ekkert rosalega lengi við stofuhita og munu fljótt molna þannig.