Tom Sietsema matargagnrýnandi Washington Post komst að því á dögunum hvaða hlutverk hann spilaði í að koma upp um framhjáhald.
Á hverjum miðvikudeg svarar hann spurningum fólks á spjallrásinni, Ask Tom. En ein kona hafði enga spurningu, heldur hafði hún áhugaverða sögu að segja.
„Jæja Tom, með nýjustu matargagnrýni þinni var mynd af eiginmanni mínum borða með konu sem er ekki ég! Eftir að hafa spurt hann út í þetta, með myndræn sönnunargögn, játaði hann að hann væri að halda framhjá mér. Mér datt í hug að þér þætti gaman að heyra þinn hluta í dramanu. Þessa þakkagjörðahátíð er ég þakklát fyrir þig að koma upp um svikara!“
„Segðu mér að þetta sé djók. Það væri ömurlegt að vita annað,“ skrifaði Tom í svari til konunnar.
Hann deildi skilaboðunum á Twitter og varaði þau sem halda framhjá við að svona getur komist upp um þau.
So, this popped up on my live online food chat today. Cheaters, take heed! pic.twitter.com/1LzQ6qS7Kb
— Tom Sietsema (@tomsietsema) November 27, 2019