Þó að buddan sé létt þá er vissulega hægt að leyfa sér að borða úti í hádeginu í stað þess að maula samloku við skrifborðið. DV tók saman lista yfir nokkra matsölustaði á höfuðborgarsvæðinu þar sem hægt að snæða hádegisverð fyrir þúsund krónur eða minna.
Á Íslenska Barnum í Ingólfstræti er hægt að snæða súpu dagsins og brauð fyrir 990 krónur. Hinum megin við götuna, á veitingastaðnum Sólon, er sömuleiðis boðið upp á súpu dagsins fyrir 990 krónur og þá kosta vorrúllur með „sweet chili“-sósu og hrísgrjónum 1.290 krónur.
Á Metro er hægt að fá stakan ostborgara á 499 krónur, salsakjúklingaborgara á 699 krónur, salsavefju á 569 krónur, stakan Hot Wings-borgara á 699 krónur og BBQ-vefju á 569 krónur. Þá er hægt að fá lítið salat til hliðar á 349 krónur og gos í glasi á 279 krónur.
Á Domino’s er boðið upp á þrjú mismunandi hádegistilboð, þar af 6 kjúklingavængi og hálfan skammt af kartöflubátum með sósu að eigin vali á 990 krónur. Fyrir 300 krónur aukalega er hægt að fá hádegistilboð 1 sem samanstendur af lítilli pítsu af matseðli og litlum skammti af brauðstöngum með sósu að eigin vali.
Á Subway kosta flestir 6 tommu kafbátar minna en 1.000 krónur og þá er hægt að bæta við miðstærð af gosi og snakkpoka eða köku fyrir 360 krónur.
Pizzan býður upp á mánudags- og þriðjudagstilboð: miðstærð af pítsu með þremur áleggstegundum á 1.000 krónur. Fyrir 490 krónur aukalega er hægt að fá miðstærð af pítsu á matseðli og hálfan lítra af gosi á 1.490.
Núðluaðdáendum er bent á Nings þar sem hægt er að fá núðlurétt dagsins á 990 krónur og Noodle Station þar sem núðlusúpa með grænmeti kostar 960 krónur.
Á matseðli Aktu Taktu er til dæmis að finna sex kjúklinganagga á 999 krónur, ristaða samloku með skinku og osti á 899 krónur, pylsu með öllu á 499 krónur og baguette með skinku og osti á 799 krónur.
Þá er einnig hægt að grípa með sér þjóðarrétt Íslendinga „eina með öllu“ á Bæjarins bestu en verðið er á bilinu 450 til 600 krónur.
Að lokum má nefna veitingastað IKEA en á matseðlinum þar má meðal annars finna þrjá rétti sem kosta aðeins 895 krónur: sænskar kjötbollur með kartöflum, týtuberjasultu og rjómasósu, plokkfisk með kartöflum, rúgbrauði og smjöri og kjúklingavængi með frönskum. Þá er hægt að fá grænmetisbuff með snittubaunum, kúskús og sósu á 595 krónur, kjúklinganagga með frönskum á 995 krónur og ofnsteiktan lax á 995 krónur.
Verðkönnun DV fór fram 19. nóvember síðastliðinn. Vert er að taka fram að listinn er ekki tæmandi.