Grænkerum fjölgar hratt og þá einnig í Hollywood. Beyoncé, Natalie Portman og Jessica Chastain eru meðal þeirra stjarna sem hafa sagt skilið við dýraafurðir.
The Independent tók saman nokkra fræga grænkera sem við ætlum að deila áfram með lesendum.
Miley Cyrus og Liam Hemsworth
Stjörnuparið gifti sig nýlega og var brúðkaupið með vegan veitingar. Söngkonan hefur mikla ástríðu fyrir veganisma og talar mjög opinskátt um það.
Alicia Silverstone
Alicia varð vegan fljótlega eftir að hún lék í Clueless og hefur talað fyrir réttindum dýra síðan.
„Að vita sannleikann um hvaðan maturinn okkar kemur er svo óhugnanlegt finnst mér. Um leið og ég sá það, þá var engin leið til baka,“ sagði leikkonan í myndbandi fyrir Compassionate Meals.
Simon Cowell
Simon er nýlega orðinn grænkeri en hann sagði í viðtali við The Sun að hann ákvað að segja skilið við dýraafurðir heilsunnar vegna.
Venus Williams
Íþróttakonan Venus varð fyrst vegan fyrir heilsuna. „Ég var greind með sjálfsofnæmissjúkdóm og mig langaði að viðhalda afkastagetu minni á vellinum. Um leið og byrjaði, varð ég ástfangin af því að gefa líkama mínum orku á besta mögulega vegu. Ekki aðeins hjálpar þetta mér á vellinum heldur líður mér eins og ég sé að gera það rétta fyrir mig,“ sagði Venus í viðtali við Health.
Natalie Portman
Leikkonan ákvað að verða vegan fyrir átta árum síðan eftir að hún lærði um umhverfisáhrif dýraafurða.
„Verksmiðjuframleiðsla dýraafurða er ábyrg fyrir mest af loft, vatns og landmengun – sem hefur einnig mjög mikil áhrif á fátæk samfélög. Þannig við getum tekið ákvarðanir þrisvar á dag, hvað við gerum varðandi jörðina okkar, og þú getur lagt þitt á mörkum einu sinni á dag, eða jafnvel einu sinni í viku með því að ákveða að borða ekki dýr eða dýraafurðir,“ sagði Natalie á styrktarsamkomu fyrir Environmental Media Awards.
Beyoncé
Beyoncé kýs að kalla sig plöntumiðaða (e. plant-based) frekar en vegan, en hún og eiginmaður hennar, Jay-Z, tóku 22 daga vegan áskorun árið 2013 og eru talin hafa verið vegan síðan þá.
David Haye
Breski boxarinn hefur verið vegan í nokkur ár.
Ariana Grande
Söngkonan varð vegan í nóvember árið 2018.
Ellie Goulding
Ellie hefur verið grænmetisæta í sjö ár og borðar mestmegnis vegan.
Mike Tyson
Fyrrum boxarinn varð vegan árið 2010. „Ég vildi óska þess að ég hefði fæðst svona,“ sagði hann við Fox News árið 2011.
Jessica Chastain
Leikkonan varð vegan fyrir um þrettán árum síðan. „Að vera vegan er ekki eitthvað sem mig langaði að vera. Ég bara virkilega hlustaði á það sem líkami minn var að segja mér,“ sagði hún við W Magazine 2017.
Rooney Mara
Rooney hefur verið vegan í átta ár. Hún sagði við Harper‘s Bazaar árið 2018 að það sé „betra fyrir heilsuna og umhverfið.“
Kim Kardashian West
Raunveruleikastjarnan er mögulega nýjasti frægi grænkerinn en hún lýsti því yfir á Instagram fyrr í apríl að hún væri nýbyrjuð að borða plöntumiðað fæði. Hún deildi mynd af vegan mat í Instagram Story og skrifaði: „Ég er að borða alveg plöntumiðað þegar ég er heima.“ Hugsanlega fer hún alla leið og segir alveg skilið við dýraafurðir.