fbpx
Föstudagur 31.janúar 2025
Matur

Hvítlauksbrauðið sem enginn stenst – Sjáið uppskriftina

Lilja Katrín Gunnarsdóttir
Þriðjudaginn 26. febrúar 2019 12:30

Dásamlegt!

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Þetta hvítlauksbrauð er svo mikið dúndur að þið trúið því varla. Þið eigið aldrei eftir að vilja annað hvítlauksbrauð eftir að þið smakkið þetta.

Hvítlauksbrauðið

Hráefni:

1/4 bolli volgt vatn
1 msk. þurrger
1 1/2 msk. sykur
4 msk. smjör
2/3 bolli mjólk
1 egg (þeytt)
1 1/4 tsk. sjávarsalt
2 bollar hveiti
2 hvítlauksgeirar (smátt saxaðir)
1 tsk. ferskt rósmarín (smátt saxað)
1 tsk. ferskt timjan (smátt saxað)
aðeins meira sjávarsalt

Aðferð:

Blandið vatni, geri og sykri vel saman í sóttir skál og látið þetta bíða í 5 til 10 mínútur, eða þar til blandan byrjar að freyða. Bræðið 2 matskeiðar af smjöri og hitið mjólkina þannig að hún sé volg. Blandið þessu tvennu saman og síðan saman við gerblönduna. Blandið egginu og saltinu vel saman við og síðan hveitinu. Munið að blanda hveitinu ekki öllu saman í einu heldur bara eftir þörfum. Deigið á að vera aðeins klístrað en ekki festast allt við puttana. Smyrjið smá olíu í aðra skál og leyfið deiginu að hvíla þar í eina klukkustund á meðan það hefast. Munið að hylja skálina með hreinu viskastykki.

Dustið hveiti á borðflöt og hnoðið deigið í nokkrar mínútur. Bætið meira hveiti við eftir þörfum. Smyrjið eldfast mót og skiptið deiginu í 8 fallegar kúlur. Raðið kúlunum í eldfasta mótið. Hyljið með viskastykkinu og látið hefast í hálftíma til viðbótar. Hitið ofninn í 190°C. Bræðið restinni af smjörinu og blandið því saman við kryddjurtirnar. Bakið bollurnar í 20 til 25 mínútur og penslið þær með smjörblöndunni um leið og þær koma úr ofninum. Stráið sjávarsalti yfir þær og berið fram.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Matur
02.09.2024

Vel heppnað Kjúklingafestival

Vel heppnað Kjúklingafestival
Matur
29.08.2024

Simmi Vill mætir með nýjung á Kjúklingafestival ársins

Simmi Vill mætir með nýjung á Kjúklingafestival ársins
Matur
25.06.2024

Domino’s býður upp á nakta pizzu

Domino’s býður upp á nakta pizzu
Matur
22.06.2024

Þetta eru augljós merki þess að veitingastaður er skítugur og þú ættir EKKI að borða þar

Þetta eru augljós merki þess að veitingastaður er skítugur og þú ættir EKKI að borða þar
Matur
29.03.2024

Þessar matartegundir er hjálplegt að borða áður en þú ferð að djamma

Þessar matartegundir er hjálplegt að borða áður en þú ferð að djamma
Matur
18.03.2024

Rjómalagað pasta með kjúkling og sveppum

Rjómalagað pasta með kjúkling og sveppum
Matur
10.01.2024

Þjóðarréttur Íslendinga valinn sá versti í heimi

Þjóðarréttur Íslendinga valinn sá versti í heimi
Matur
27.12.2023

Guðfaðir „ristaðs brauðs með avókadó“ látinn langt fyrir aldur fram

Guðfaðir „ristaðs brauðs með avókadó“ látinn langt fyrir aldur fram