fbpx
Föstudagur 22.nóvember 2024
Matur

Það sem Árni Björn crossfittari borðar á venjulegum degi

Guðrún Ósk Guðjónsdóttir
Sunnudaginn 24. febrúar 2019 12:00

Árni Björn Kristjánsson. Mynd: Rúnar Kristmansson

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Árni Björn Kristjánsson byrjaði að æfa CrossFit haustið 2009. Hann hefur síðan þá keppt þrisvar sinnum á heimsleikunum í Crossfit. Í dag er hann stöðvastjóri og meðeigandi CrossFit XY í Garðabæ.

DV vildi vita hvað svona sterkur, hraustur og athafnasamur maður borðar á venjulegum degi. Árni Björn er vegan og hefur verið það í tæplega tvö ár

Sjá einnig: Það sem vegan kraftlyftingakona Íslands borðar á venjulegum degi

Mynd: Rúnar Kristmansson

Hvernig er venjulegur dagur hjá þér?

„Venjulegur dagur byrjar 6:45 þegar fjölskyldan fer á fætur og við hjónin útbúum morgunmat saman fyrir dóttur okkar og komum henni í leikskólann. Eins og er, erum ég og konan mín bæði að fasta svo við þurfum ekki að huga að morgunmat fyrir okkur,“ segir Árni Björn og heldur áfram:

„Ég er stöðvastjóri og meðeigandi í CrossFit XY en þar hef ég þjálfað frá opnun stöðvarinnar árið 2012. Ég æfi yfirleitt milli 8-10, vinn í hádeginu og seinni partinn og tek svo aðra æfingu milli 14-16. Flesta daga þjálfa ég aftur á milli 16:30-18:30.“

Ertu búin að ákveða fyrir fram hvað þú ætlar að borða þann dag eða ferðu eftir tilfinningunni?

„Ég tek tarnir þar sem ég skipulegg matinn mjög vel fram í tímann en aðra daga þá fer það meira eftir því hvað er til heima og hvað mér og konunni minni langar að elda hverju sinni. Við erum hins vegar mjög rútínuglöð þegar það kemur að mataræði og eigum okkar uppáhalds rétti og allt hráefni í þá er oftast til,“ segir Árni Björn.

Hvað hefurðu verið vegan lengi?

„Ég hef verið vegan í tæp tvö ár.“

Hverjir eru uppáhalds vegan próteingjafarnir þínir?

„Sojakjöt eins og Oumph!, Like meat, Halsans kök koma nánast við sögu á hverjum degi sem og Bulkpowders vegan prótein duftið frá Hreysti. Hnetusmjör kemur líka sterkt inn og hemp fræ.“

Mynd: Rúnar Kristmansson

Það sem Árni Björn borðar á venjulegum degi

Morgunmatur:

Lang oftast fasta ég frá 21:00 á kvöldin til 13:00 daginn eftir og fæ mér þá ekkert nema 1-2 kaffibolla. Hinsvegar ef ég er ekki að fasta þá borða ég yfirleitt hafragraut og set próteinduft og hnetusmjör út á hann.

Hádegismatur:

Tortilla vefja með sojakjöti, salati, gúrku, papriku, döðlum, hemp fræjum, spírum, tómötum eða hvaða grænmeti sem er til hverju sinni og einhverskonar sósu, oft heimagerð vegan pítusósa, sinnepssósa eða bbq. Ég fæ mér líka alltaf tvær brasilíuhnetur á dag.

Millimál:

Prótein shake og banani með hnetusmjöri eða ristað brauð með avocado, tómötum, salti og pipar.

Kvöldmatur:

Við reynum að hafa kvöldmatinn einfaldan og/eða þannig að hægt sé að útbúa hann fyrr um daginn og hita upp. Linsubaunaréttur með salati og ofnbökuðu spergilkáli eða laufléttur „hamborgari“ með baunabuffi eða sojaborgara eru dæmi um nokkuð reglulegan kvöldmat hjá okkur.

Linsubaunaréttur Árna Björns

Innihaldsefni:

1 bolli brúnar eða rauðar linsubaunir
½ – 1 grænmetisteningur
2,5 bollar vatn/haframjólk/rjómi eftir því hversu rjómakennt og orkuríkt þú vilt hafa réttinn hverju sinni
1 paprika, smátt skorin
1 laukur, smátt skorinn
½ blaðlaukur, smátt skorinn
1 tsk tandoori krydd
1 tsk garam masala
½ tsk chili duft

Meðlæti:

Döðlukurl léttsteikt á pönnu með sesamfræjum
Ofnbakað brokkólí með olíu og salti (ca. 15-20 mínútur í ofni við 180°C)
Kóríander

Leiðbeiningar:

  1. Skola linsubaunirnar og ef þú hefur tíma leggja þær í bleyti í 10-30 mín
  2. Sjóða þær ásamt grænmetistening eftir leiðbeiningum á pakkningu – á ekki að sjóða á suðu heldur láta malla
  3. Á meðan þær malla þá hita olíu á pönnu við meðalhita og steikja papriku, lauk og blaðlauk með kryddum.
  4. Blanda öllu saman og láta malla í smá stund til að fá bragðið fram.
  5. Á meðan því stendur þá hita döðlur og sesamfræ á pönnu og taka fram brokkólí og kóríander og skera til. Ef brokkólíið er útbúið fyrirfram getur verið gott að setja það útí réttinn til að ná hita í það en það er líka gott að hafa það kalt.
  6. Einnig getur verið gott að toppa réttinn með kókosflögum, sólblóma- og/eða graskersfræjum.
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Matur
25.06.2024

Domino’s býður upp á nakta pizzu

Domino’s býður upp á nakta pizzu
Matur
22.06.2024

Þetta eru augljós merki þess að veitingastaður er skítugur og þú ættir EKKI að borða þar

Þetta eru augljós merki þess að veitingastaður er skítugur og þú ættir EKKI að borða þar
Matur
03.04.2024

Svona áttu að haga þér við matarinnkaupin – 10 siðareglur stórmarkaðanna

Svona áttu að haga þér við matarinnkaupin – 10 siðareglur stórmarkaðanna
Matur
01.04.2024

Tveir veitingastaðir koma nýir á listann yfir þá 10 bestu í Reykjavík

Tveir veitingastaðir koma nýir á listann yfir þá 10 bestu í Reykjavík
Matur
10.01.2024

Þjóðarréttur Íslendinga valinn sá versti í heimi

Þjóðarréttur Íslendinga valinn sá versti í heimi
Matur
27.12.2023

Guðfaðir „ristaðs brauðs með avókadó“ látinn langt fyrir aldur fram

Guðfaðir „ristaðs brauðs með avókadó“ látinn langt fyrir aldur fram
Matur
06.12.2023

Pylsutilboðið vinsæla hjá Costco er dýrast á Íslandi

Pylsutilboðið vinsæla hjá Costco er dýrast á Íslandi
Matur
05.12.2023

Þriðjudagstilboð Domino´s hækkar í þriðja sinn á rúmum tveimur árum

Þriðjudagstilboð Domino´s hækkar í þriðja sinn á rúmum tveimur árum