Hér er geggjað gott ketó-brauð með aðeins fjórum innihaldsefnum. Þetta brauð er tilvalið sem morgunmatur í rúmið á fimmtudaginn næsta, sjálfan Valentínusardaginn. Svo er líka frábært að nota það sem pítsubotn.
Og af því að ég er á væmnum nótum þá læt ég eina af mér og kallinum fylgja með.
Hráefni:
1 bolli mozzarella ostur, rifinn
½ bolli parmesan ostur, rifinn
2 egg
¼ bolli jalapeno í dós
Aðferð:
Öllu blandað saman og mótaðir hringir úr deiginu. Ofninn hitaður í 190°C og bakað í 15 til 20 mínútur.