Hvernig græjar maður hinar fullkomnu sætkartöflu franskar?
Það tekur ekki nema tuttugu mínútur að útbúa þennan vinsæla rétt og þær eru bæði hollar og góðar. Frábærar fyrir vegan fólk og líka allt hitt fólkið.
Svona ferðu að:
- Forhitar ofninn. Undir og yfir hiti á 200 gráðum. Mjög mikilvægt svo þær verði stökkar og góðar.
- Á meðan ofninn er að hitna dregur þú fram bökunarplötu og leggur á hana álpappír eða bökunarpappír.
- Því næst skerð þú sætu kartöfluna í strimla og setur í skál.
- Nú hellir þú ólífuolíu út á kartöflurnar og bætir út á salt og pipar. Láttu þær liggja aðeins í skálinni svo að þær dragi olíuna í sig.
- Dreifðu þeim á álpappírinn á bökunarplötunni.
- Stilltu ofninn á 180 gráður.
- Skelltu þeim í ofninn og taktu út eftir um það bil korter.
Þessar frönsku sætu kartöflur eru tilvaldar sem meðlæti með góðum hamborgara, kjúklinga eða grænmetisborgara.
Nú eða bara gömlu góðu kódilettunum?