Nýja uppáhalds kökutegundin mín eru svokallaðar drip kökur en þær eru ótrúlega fallegar og frekar einfalt að gera þær á marga vegu.
Ég átti afmæli um síðustu helgi og skellti í eina drip köku í tilefni þess. Kakan sem ég gerði var gerð úr 4 súkkulaðibotnum, súkkulaðimús, jarðaberjamús, snickersbitum, saltkaramellu og saltkaramellusmjörkremi og því nóg að gera og allskonar mismunandi brögð að koma saman.
Ég fékk allmargar fyrirspurnir um hana á snapchat (hronnbjarna) hjá mér og ákvað því að deila með ykkur uppskriftinni ef ykkur langar að prófa.
Útbúið deigið eins og stendur á pakkanum og bætið útí blönduna sýrðum rjóma.
Bakið í 15cm formi, helminginn af deiginu í einu. Kakan er tilbúin þegar prjónn sem stungið er í kökuna kemur næstum því hreinn út. Kælið botnana og kljúfið hvorn botn í tvennt og búið þannig til 4 jafnstóra botna.
Hitið vatnið og hrærið útí það kakódufti og kaffidufti þar til allt er vel blandað saman
Bræðið suðusúkkulaði og kælið örlítið
Þeytið rjóma og sykur saman þar til rjóminn er vel þeyttur
Blandið vel saman vatni með kakó og kaffi, bræddu súkkulaði og Nutella
Hrærið varlega súkkulaðiblönduna og þeytta rjómann saman þar til allt er samblandað
Kælið í ísskáp í smástund
Blandið saman eggjahvítum og sykri með gaffli í hitaþolinni skál og setjið yfir vatnsbað. Setjið hitamæli í blönduna og látið hitastigið ná uppí ca 75° hita. Takið þá skálina af hitanum og hellið innihaldinu í hrærivélaskál og hrærið á mesta hraða í 6-8 mínútur eða þar til blandan er orðin stífþeytt og glansandi.
Bætið útí blönduna mjúku smjöri og vanilludropum og blandið vel saman.
Bætið útí blönduna jarðaberjamauki, smá í einu og hrærið vel á milli
Jarðaberjamauk
Bræðið saman í potti sykur, púðursykur, sýróp og smjör og látið blönduna sjóða í ca 3 mín og hrærið stöðugt í á meðan. Takið þá pottinn af hellunni og hellið rjómanum útí pottinn (ath blandan tvöfaldast við þetta í smástund svo potturinn má ekki vera of lítill). Hrærið blönduna vel saman saman og kælið í a.m.k. 45 mín eða þar til blandan þykknar vel.
Þeytið smjör í hrærivél í smátíma og bætið svo útí smjörið flórsykri hægt og rólega meðan hrærivélin er á lægsta styrk. Þegar allt er orðið samblandað þá er sýrópi, eggjarauðu og vanilludropum bætt útí. Loks er öll blandan þeytt á mesta styrk í a.m.k. 3 mínútur. Loks er helmingnum af saltkaramellunni blandað útí smjörkremið og öllu blandað vel saman.
Skerið 3 Snickersstykki í litla bita fyrir kökuna
Skerið 3 stykki í stærri bita fyrir skreytingu ofaná kökunni
Leggið einn botn á kökudisk og setjið smá smjörkrem undir botninn svo kakan renni ekki til.
Setjið þykkt lag af súkkulaðimús yfir botninn og setjið næsta botn yfir.
Setjið þykkt lag af jarðaberjamús yfir botninn og setjið næsta botn yfir.
Setjið þunnt lag af súkkulaðimús yfir botninn og stráið svo vel af Snickers í litlum bitum yfir (ca. 3 lítil stykki). Hellið yfir þetta 2/3 af saltkaramellunni sem er eftir og setjið næsta botn yfir.
Hyljið kökuna með saltkaramellusmjörkremi. Best að setja það í sprautupoka með flötum stút og sprauta þykku lagi af kremi allan hringinn á kökunni og vel uppá kantana og slétta svo úr því. Með þessu kemuru í veg fyrir að mylsna og önnur krem úr kökunni smitist í kremið.
Setjið suðusúkkulaðidropa í skál
Hitið rjóma og corn syrup í potti þar til það er alveg að fara að sjóða og hellið þá blöndunni yfir súkkulaðið og hrærið vel saman þar til allt er samblandað. Kælið í ísskáp þar til blandan er orðin nógu þykk til að sprauta henni á kökuna án þess að allt leki útum allt. Ég kældi í ca 45-60 mín.
Ég setti súkkulaðibráð í lítinn sprautubrúsa frá Wilton en svo er líka hægt að setja hana í sprautupoka með mjóum stút.
Ég byrjaði á því að gera hliðarnar með því að sprauta súkkulaðinu alveg efst á kökuna og láta súkkulaðið reglulega leki niður hliðarnar með því að sprauta auka súkkulaði þar og leyfa því að leka mismikið niður. Þegar ég var komin allan hringinn þá bætti ég súkkulaði ofaná kökuna og smurði varlega svo allur toppurinn á kökunni væri hulinn. Mikilvægt að passa að súkkulaðibráð sé orðin nógu þykk til að leka ekki öll útum allt. Mín súkkulaðibráð hefði mátt vera orðin aðeins þykkari en ég hafði því miður ekki tíma til að bíða lengur !
Auðvitað er algjörlega frjálst að skreyta kökuna að vild en ég ákvað að segja aðeins hvað ég gerði. Ég hafði að vísu alltof lítinn tíma og hefði verið til í mun meiri tíma til að nostra við kökuna.
Ég setti súkkulaðimús og karamellusmjörkrem í sitthvorn sprautupokann með sitthvorum sprautustútnum.
Ég skar 3 lítil Snickers í bita
Ég sprautaði svo úr sprautupokunum nokkrum “doppum” útum allt ofaná kökunni af bæði súkkulaðimús og karmamellusmjörkremi og stráði svo snickersbitum yfir það og drissaði að lokum restinni af saltkaramellusósunni yfir allt saman.