fbpx
Miðvikudagur 09.apríl 2025
Matur

Smákökurnar sem hringja inn jólin

Lilja Katrín Gunnarsdóttir
Miðvikudaginn 14. nóvember 2018 17:00

Snilldarkökur.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Það líður að aðventubakstri og eru margir farnir að viða að sér smákökuuppskriftum í bland við kökurnar sem bakaðar eru á ári hverju samkvæmt venju.
Hér er smákökuuppskrift sem svíkur engan og er einstaklega frískandi og bragðgóð.

Appelsínu- og hvítsúkkulaðikökur

Hráefni:

115 g mjúkt smjör
½ bolli púðursykur
1/3 bolli sykur
1 stórt egg
1 tsk. vanilludropar
1 tsk. appelsínudropar
1 msk. appelsínubörkur, rifinn
1¾ bolli hveiti
½ tsk. matarsódi
¼ tsk. salt
¾ bolli hvítt súkkulaði, grófsaxað
½ bolli makadamíuhnetur, grófsaxaðar (eða aðrar hnetur)

Aðferð:

Hitið ofninn í 160°C og takið til tvær ofnplötur. Klæðið þær með smjörpappír. Hrærið smjör, púðursykur og sykur vel saman. Bætið því næst eggi, vanilludropum, appelsínudropum og appelsínuberki saman við og hrærið vel. Bætið einum bolla af hveiti, matarsóda og salti saman við og því næst restinni af hveitinu. Bætið súkkulaði og hnetum saman við með sleif eða sleikju. Búið til kúlur úr deiginu og raðið á ofnplöturnar. Þrýstið aðeins niður á þær með fingrunum. Bakið í tólf mínútur og leyfið þeim að hvíla á plötunum í um tíu mínútur.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Matur
03.08.2024

Hvað kostar 12″ pizzan víðs vegar um landið?

Hvað kostar 12″ pizzan víðs vegar um landið?
KynningMatur
28.07.2024

Ný ásýnd Orku rakar inn verðlaunum

Ný ásýnd Orku rakar inn verðlaunum