fbpx
Laugardagur 22.febrúar 2025
Matur

Helgin kallar á skúffuköku: Skotheld uppskrift fyrir nautnaseggi

Lilja Katrín Gunnarsdóttir
Laugardaginn 29. september 2018 15:12

Alltof góð!

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Mörgum finnst gaman að leika sér í eldhúsinu um helgar, enda nægur tími til að dunda sér. Það þurfa allir að eiga uppskrift að skotheldri skúffuköku, en þetta er einmitt ein slík. Kremið er auðvitað ekki heilagt, enda eiga margir uppskrift að kremi sem þeir gjörsamlega dýrka.

Dúnmjúk skúffukaka

Kaka – Hráefni:

2 bollar hveiti
2 bollar sykur
1/4 tsk sjávarsalt 
230 g smjör
4 msk kakó
1 bolli sjóðandi heitt vatn
1/2 bolli súrmjólk frá
2 stór egg (þeytt)
1 tsk matarsódi
1 tsk vanilludropar

Fullkomin sneið.

Aðferð:

Hitið ofninn í 180°C og smyrjið eina litla ofnskúffu. Blandið hveiti, sykri og salti vel saman í skál. Bræðið smjörið í potti og bætið kakói og sjóðandi heitu vatni saman við þegar smjörið er bráðnað.

Blandið súrmjólk, eggjum, matarsóda og vanilludropum saman í lítilli skál. Blandið súrmjólkurblöndunni saman við hveitiblönduna og síðan vatnsblöndunni. Hrærið allt vel saman. Hellið blöndunni í skúffuna og bakið í 25-30 mínútur.

Krem – Hráefni:

150 g mjúkt smjör
300 g flórsykur
1/2 bolli þykk karamellusósa
1 tsk vanilludropar
1/4 tsk sjávarsalt
1-2 msk nýmjólk
3-4 msk kakó

Aðferð:

Þeytið smjörið í 2-3 mínútur og hrærið síðan flórsykrinum saman við. Blandið karamellusósu, kakó, vanilludropum og salti vel saman við. Ef kremið er of þykkt má bæta smá mjólk saman við. Smyrjið kreminu ofan á kólnaða kökuna og skreytið að vild.

Verði ykkur að góðu!
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Matur
02.09.2024

Vonsvikin með viðbragðstíma Wolt og vældi í netverjum – Viðbrögðin líklega meiri vonbrigði

Vonsvikin með viðbragðstíma Wolt og vældi í netverjum – Viðbrögðin líklega meiri vonbrigði
Matur
02.09.2024

Vel heppnað Kjúklingafestival

Vel heppnað Kjúklingafestival
Matur
01.04.2024

Tveir veitingastaðir koma nýir á listann yfir þá 10 bestu í Reykjavík

Tveir veitingastaðir koma nýir á listann yfir þá 10 bestu í Reykjavík
Matur
29.03.2024

Þessar matartegundir er hjálplegt að borða áður en þú ferð að djamma

Þessar matartegundir er hjálplegt að borða áður en þú ferð að djamma