Þessi einstaklega ferska og góða jógúrtterta á sér sérstakan stað í hjarta mínu þar sem mamma mín gerði þessa tertu í hverri einni og einustu veislu sem hún hélt fyrir okkur fjölskylduna.
Uppskriftin er lauflétt en vandasöm og það elska allir þessa tertu. Ég mæli því með því að prófa hana sem fyrst.
Botn:
250 gr Homeblest-kex
100 gr smjör
1 msk. sykur
Jógúrtkrem:
200 gr fersk jarðarber
500 gr jógúrt með jarðarberjum
150 gr sykur
1 og 1/2 tsk vanillusykur
6 matarlímsblöð
4 dl rjómi
Byrjið á því að bræða smjörið. Myljið því næst kexið niður, gott er að nota matvinnsluvél. Bætið sykrinum út í brædda smjörið og hrærið vel saman. Hellið smjörinu saman við kexmulninginn og blandið vel saman.
Þjappið svo kexblöndunni vel í botninn á smelluformi og setjið í kæli
Setjið jógúrt og jarðarber í matvinnsluvél eða merjið berin vel og blandið þeim saman við jógúrtina. Hrærið sykrinum og vanillusykrinum saman við.
Leggið matarlím í kalt vatn í um það bil fimm mínútur. Kreistið vatnið svo úr þeim og leggið þau ofan í örlítið af heitum rjóma. Hrærið vel saman. Leyfið svo blöndunni að kólna örlítið aður en þið blandið henni varlega saman við jógúrtblönduna.
Þeytið 4 dl af rjóma og blandið vel saman við jógúrtblönduna.
Takið botninn úr kælinum, bætið jógúrtblöndunni ofan á og skellið svo forminu aftur í kæli helst yfir nótt en að lágmarki í 3-5 klukkustundir áður en tertan er borin fram.
Gott er að losa örlítið hliðarnar frá með örþunnum spaða áður en forminu er smellt af og tertan færð yfir á kökudisk.
Ég skreytti kökuna með örlítið af Homeblest-kex mulningi, ferskum jarðarberjum, ferskum hindberjum og súkkulaði dropum, en að sjálfsögðu er hægt að skreyta kökuna með hverju sem er eða jafnvel sleppa því.
Verði ykkur að góðu.
Uppskriftin birtist fyrst á vef Öskubuska.is