Vorið er mætt með ferskleika, birtu og nýjum tækifærum til að endurnýja – bæði sjálfan þig og heimilið! Dagarnir lengjast, birtan verður meiri og hitastigið hækkar smátt og smátt. Nú er tíminn til að létta til í fataskápnum, fara í gegnum snyrtivörurnar og koma umhverfi þínu í vorham.
TÍSKA & SKÓR
Fyrir konur bjóða vorlínurnar upp á léttari og kvenlegri snið í pastellitum: mynta, smjörgulur, rykroðableikur og himinblár eru áberandi – auk silkimjúks kaffibrúns lits sem útnefndur var litur ársins! Skór með vefnaði, mesh eða dýramunstri eru vinsælir sem og ballerínuskór svo eitthvað sé nefnt.
Karlmenn geta spilað með létt lög, litríkan klæðnað og þægileg efni sem gefa pláss fyrir persónulegan stíl. Nú er tíminn til að hrista af sér vetrarslenið og mæta með ferskari og frjálsari stíl í vorið.
SNYRTIVÖRUR
Vertu tilbúin fyrir sólina með sólarvörn, nýjum farða og léttari húðumhirðu. Þeir sem vilja sólarkysstan ljóma án þess að eiga í hættu að skemma húðina geta fundið mikið úrval af hvers konar brúnkukremum.
ÍÞRÓTTIR
Vorið kallar á hreyfingu! Hvort sem þú ert byrjandi í hlaupum eða vanur hlaupari, þá er það nánast vísindaleg staðreynd að fólk hreyfir sig frekar ef það er í splunkunýjum og fallegum hlaupafötum. Tölum ekki um slík föt sem draga í sig raka og anda vel.
HEIMILIÐ
Léttari litir og nýkir vorstraumar gera heimilið bjartara og notalegra. Kaffibrúnn er litur ársins – en einnig eru bláir tónar í uppáhaldi. Endurnýjaðu skrautmuni, dúka og borðbúnað fyrir páska eða einfaldlega til að fagna nýrri árstíð.
BÖRNIN
Þau vaxa hratt og þurfa léttari föt, nýja skó og hlífðarfatnað fyrir útileiki og leikskólalíf í breytilegu veðri.