fbpx
Föstudagur 31.janúar 2025
Kynning

Beiersdorf lyftir baráttunni gegn ótímabærri öldrun húðarinnar – Sjáanleg áhrif á 5 mínútum og langtíma meðferð gegn hrukkum

Kynningardeild DV
Föstudaginn 31. janúar 2025 09:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Beiersdorf lyftir baráttunni gegn ótímabærri öldrun húðarinnar á næsta stig með NIVEA Q10 TARGETED WRINKLE FILLER SERUM – sjáanleg áhrif á 5 mínútum og langtíma meðferð gegn hrukkum

  • Með hinu byltingarkennda Q10 TARGETED WRINKLE FILLER SERUM kynnir NIVEA vöru sem skilar sýnilega minni hrukkum á aðeins 5 mínútum sem viðbót við Q10 húðrútínuna.
  • Hraðvirk og öflug formúla með háþróuðu 5% ACTIVE COMPLEX inniheldur hreint Q10 ásamt BIOXIFILL® peptíð. Þessi öfluga virkni nær 10 lög¹ inn í húðina til að vinna gegn jafnvel þrálátustu hrukkum.

NIVEA – Brautryðjandi í Q10 húðumönnun

NIVEA var fyrst á markaðnum með andlitsvörur sem innihalda hreint Q10 kóensím, tækni sem hlaut Nóbelsverðlaun. Síðan þá hefur Q10 línan þróast í vinsælustu andlitsvörur NIVEA. Nú styrkir vörumerkið enn frekar stöðu sína sem leiðandi sérfræðingur í húðumönnun með Q10 TARGETED WRINKLE FILLER SERUM.

„Q10 línan okkar er afar vinsæl – á tveggja sekúndna fresti selst Q10 andlitskrem! Neytendur um allan heim treysta á R&D sérfræðiþekkingu okkar og metnað til að skapa heimsklassa nýjungar,“ segir Julia Frankenberger, alþjóðlegur markaðsstjóri fyrir andlitsvörur hjá NIVEA.

„Við lyftum nú þessari tækni á næsta stig með fyrsta seruminu sem sannanlega minnkar hrukkur á aðeins 5 mínútum. Það er sérstaklega hannað til að meðhöndla þrálátustu hrukkurnar á viðkvæmum svæðum andlitsins, eins og á enninu, kringum augun, varirnar og fellingarnar í kringum munninn – þau svæði sem þurfa mesta hjálp þegar kemur að hrukkuminnkun.“

Þetta silkimjúka serum vinnur á tvennan hátt: dregur úr fínum línum á 5 mínútum og veitir um leið langtíma áhrif gegn öldrunareinkennum við stöðuga notkun. Þessi nýjung styrkir enn frekar vinsælu Q10 ANTI-WRINKLE POWER línuna, sem er sérsniðin til að viðhalda heilbrigðri og aðlaðandi húð á áhrifaríkan hátt.

Vinnur með líffræði húðarinnar

Merki ótímabærrar öldrunar húðar, svo sem fínar línur og fyrstu hrukkur, byrja að koma fram um tvítugt þegar húðin hættir að framleiða nóg af eigin Q10 kó-ensím. Þetta getur leitt til minni frumuorku og skerts andoxunar varnarhæfileika sem eykur líkur á hrukkumyndun.

Það er sem betur fer er hægt að bæta húðina upp með beinni Q10 meðhöndlun sem styrkir varnir hennar og bætir upp tapið á Q10 sem gerir húðina heilbrigðari lengur. Þetta eflir húðfrumur til að vinna gegn öldrun og halda áfram að framleiða mikilvæg uppbyggingarprótín sem halda húðinni ferskri og unglegri.

„Q10 viðbót er gagnleg bæði dag og nótt. Á daginn verndar hún húðina gegn skaðlegum ytri þáttum, eins og UV-geislun og mengun, með beinni andoxunarhæfni sinni. Á næturnar, þegar húðin endurnýjar sig, stuðlar hún að viðgerð á skemmdum húðfrumum,“ útskýrir Prof. Luca Tiano, prófessor í lífefnafræði við Marche Polytechnic University og stjórnarmaður í International Co-enzyme Q10 Association (ICQA).

Öflugt 5% ACTIVE COMPLEX

Hröð og áhrifarík formúla sameinar hreint Q10 og BIOXIFILL® peptíð. Þessi sterku og húðvænu öldrunarvarnarefni komast niður 10 húðlög, örva kollagenframleiðslu og vinna þannig gegn hrukkum frá rótum.

Helsta innihaldsefni NIVEA, Q10 snýr við öldrunarferlum frumna, endurnýjar þær og verndar gegn skaðlegum sindurefnum. Að auki örva BIOXIFILL® peptíðin, sem samanstanda af lífsnauðsynlegum amínósýrum, kollagenframleiðslu og hjálpa til við að berjast gegn hrukkum á öllum stigum.

Auk þess að vera létt og silkimjúkt, inniheldur serumið litaagnir sem mynda rakagefandi filmu, fylla út og endurmóta húðina strax sem skilar sér í sýnilegri hrukku-minnkun á aðeins 5 mínútum.

5% ACTIVE COMPLEX skilar sér í áhrifaríkum langtíma niðurstöðum:

Mýkri og þéttari húð

Minnkun á hrukkum á enni og kringum varir

Sýnileg 50% minnkun á hrukkum við augnsvæði og í fellingum við munn eftir 4 vikna notkun*

Klínískar rannsóknir sanna virkni vörunnar

Klínískar prófanir sem sjálfstæðar stofnanir hafa framkvæmt staðfesta áhrif Q10 TARGETED WRINKLE FILLER SERUM. 90% kvenna sem prófuðu vöruna upplifðu unglegra útlit*.

„Við erum einstaklega stolt af því að þetta nýstárlega serum skilar bæði tafarlausum og langtímaárangri, passar við allar húðgerðir og styður hvaða andlitsrútínu sem er,“ segir Frankenberger.

¹ In upper epidermal layers

* Self-grading (Score), 4-week study with 41 women, 2022

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Kynning
12.06.2024

Stjarnan og Hekla skína í Garðabæ

Stjarnan og Hekla skína í Garðabæ
Kynning
08.06.2024

Skyttan Rúnar líka hittinn á shuffleborðinu

Skyttan Rúnar líka hittinn á shuffleborðinu
Kynning
19.02.2024

Nú er hægt að greiða fyrir bílastæði með Verna appinu án aukagjalda

Nú er hægt að greiða fyrir bílastæði með Verna appinu án aukagjalda
Kynning
14.02.2024

Brimborg frumsýnir nýjan Peugeot E-208 – Kraftmeiri, meiri drægni og ómótstæðilega skemmtilegur í akstri

Brimborg frumsýnir nýjan Peugeot E-208 – Kraftmeiri, meiri drægni og ómótstæðilega skemmtilegur í akstri
Kynning
13.12.2023

Hlífðarpúðar sem aðlagast líkamanum vegna einstakrar tækni

Hlífðarpúðar sem aðlagast líkamanum vegna einstakrar tækni
Kynning
28.11.2023

Skúli fann heilsuna aftur í Póllandi – „Lífsgæði mín löguðust umtalsvert frá því að vera algjör sjúklingur eða öryrki yfir í að komast aftur á vinnumarkaðinn“

Skúli fann heilsuna aftur í Póllandi – „Lífsgæði mín löguðust umtalsvert frá því að vera algjör sjúklingur eða öryrki yfir í að komast aftur á vinnumarkaðinn“