Nýbyggingar, íbúðabyggingar og stærri verkefni
Í þeim tilfellum þar sem innrétta þarf ákveðinn fjölda íbúða, svo sem fyrir verktaka sem eru að koma upp nýbyggingum, hafa sérstakir ráðgjafar í Fyrirtækjaþjónustunni yfirumsjón með verkefninu í samvinnu við verkefnastjóra. Þjónustan snýst aðallega um að auðvelda umstang og spara dýrmætan tíma og þar með peninga. Í IKEA fæst úrval af vörum á hagstæðu verði, og ef panta þarf í magni getur starfsfólk IKEA séð um að sérpanta vörur. Breitt vöruúrvalið auðveldar breytingar síðar meir, eða ef það þarf að bæta einhverju við, til dæmis að skipta út eldhúsframhliðum eða breyta innvolsi í skápum. Ráðgjafarnir hafa góða þekkingu á vöruúrvali IKEA og þjónustu ásamt reynslu af því að vinna að fjölbreyttum verkefnum við að innrétta hin ólíkustu rými.
Hvernig fer samstarfið fram?
Í deildinni starfa um tíu fyrirtækjaráðgjafar sem mynda gott teymi. Dofri og Ingvi sjá að mestu um stærri verkefni, svo sem innréttingu nýbygginga, og eru þá í sambandi við verkefnastjóra til að sjá um að allt gangi smurt fyrir sig frá upphafi til enda.
Þegar starfsfólk Fyrirtækjaþjónustunnar þjónustar verktaka við að innrétta íbúðir er byrjað á að þarfagreina verkið hvað varðar verðstiga, útlit og notagildi. Ráðgjafar Fyrirtækjaþjónustunnar leggja til skipulagningu innan hvers rýmis og hentugar vörur. Samskiptin fara öll í gegnum Fyrirtækjaþjónustuna sem gerir þjónustuna persónulegri. Því næst gerir ráðgjafi pöntun sem miðast þá af áætluðum afhendingartíma verksins. Ráðgjafar Fyrirtækjaþjónustunnar eru til staðar í afhendingarferlinu, enda með góða yfirsýn og reynslu, og ef þörf er á flutningi út á land er unnið að því að finna sem hagkvæmasta lausn. Ráðgjafarnir geta mælt með aðila í uppsetningu eða sérsmíði IKEA innréttinga, ef þörf er á.
Fyrirtækjaþjónustan hefur fengið góð viðbrögð og meðmæli með þjónustu fyrir verktaka, enda er áhersla lögð á að mæta þörfum viðskiptavinarins eins vel og unnt er.
Ef innrétta á Svansvottað húsnæði getur Fyrirtækjaþjónustan aðstoðað, því margar IKEA vörur eru samþykktar til notkunar í Svansvottað húsnæði þó að þær hafi ekki hlotið vottunina sem slíka. Hugmyndafræði IKEA er sú að vörumerkið sé gæðamerki út af fyrir sig, en allar vörur IKEA fara í gegnum strangt gæða- og öryggisferli. Ráðgjafar Fyrirtækjaþjónustunnar geta ráðlagt þér hvaða vörur eru þegar samþykktar og jafnvel óskað eftir að vöru sé bætt á listann, í samráði við Umhverfisstofnun.
Ef verkefni er fyrir höndum er tilvalið að hafa samband við Fyrirtækjaþjónustu IKEA og nýta sér þessa ókeypis þjónustu, en það getur einfaldað verkið til muna að hafa einhvern sem heldur utan um birgðir, tínir til og sendir vörur ásamt því að halda utan um allt kaupferlið og biðpantanir. Hægt er að panta tíma í ókeypis fyrirtækjaráðgjöf sem getur farið fram í verslun IKEA, á vinnustað viðskiptavinar eða í gegnum fjarfundarbúnað. Sendu tölvupóst á sala@ikea.is ef þú vilt nýta þér þjónustuna eða kynna þér málið betur.