Mitsubishi Motors kynnti á dögunum fjórðu og nýjustu útfærslu Mitsubishi Outlander tengitvinnbílsins við góðar undirtektir. Ljóst er að margir Íslendingar bíða spenntir eftir nýrri kynslóð Outlander enda fyrri þrjár kynslóðir selst í rúmlega 6.000 eintökum hérlendis og var bíllinn um árabil einn af vinsælustu bílum landsins. „Það er mikil eftirvænting meðal starfsmanna að fá fyrstu bílana til okkar í Heklu enda teljum við bílinn smellapassa íslenskum aðstæðum,“ segir Hlynur Hjartarson, vörustjóri Mitsubishi hjá Heklu.
Nýr Outlander er væntanlegur til Heklu vorið 2025.