Madonna er einn þekktasti skíðabær Ítalíu sem er fallegt fjallaþorp í ríflega 1500 metra hæð yfir sjávarmáli. Þessi þúsund manna bær státar af fjölbreyttu skíðasvæði við allra hæfi, fallegum hótelum, glæsilegum veitingastöðum, verslunum og fallegu umhverfi. Úr miðbænum er stutt í lyftur og kláfa og skamman tíma tekur að komast upp í skíðalöndin ofan við bæinn.
Sex mismunandi skíðasvæði eru aðgengileg frá Madonna di Campiglio. Brekkurnar eru bláar, rauðar og svartar- allt eftir getu hvers og eins. Hæstu brekkur eru í allt að 2600 metra hæð.
Pradalago og Gröste svæðin eru þægilegust. Spinale og Cinque Laghi fela í sér fleiri áskoranir. Val di Sole og Pinzolo eru einnig spennandi valkostir innan lyftukerfis Madonna.
Á svæðinu eru 150 km af brekkum, lyftur eru 58 talsins og eru opnar frá klukkan 8.30- 16.30 alla daga. Skíðaskólar eru margir í Madonna og boðið upp á skíðakennslu fyrir alla aldurshópa. Flest hótel eru í göngufæri við skíðalyftur og kláfa.
Skíðasvæðið í Madonna hentar byrjendum jafnt sem lengra komnum. Svæðið er vel skipulagt og kláfarnir fjórir, Pradalago, 5 laghi, Spinale og Gröste, flytja skíðafólk hratt og örugglega upp í brekkurnar. Lyftukostir eru fyrsta flokks og heimamenn hugsa einstaklega vel um sólríkar brekkurnar. Öll hótel Úrvals Útsýnar eru í göngufæri við kláfana.
Skíðasvæðið í Madonna hefur verið verðlaunað fyrir viðhald á skíðabrautum og leggja heimamenn mikið upp úr því að viðhalda því orðspori. Á hverjum degi má velja gott skíðasvæði með breiðum brautum og brekkum, fyrir nýgræðinga sem þaulvant skíðafólk. Þeir fyrrnefndu geta valið á milli 13 skíðaskóla.
Bærinn er afar líflegur og skemmtilegur. Þegar skíðunum hefur verið lagt bíða heimamenn eftir gestum með heita skíðadrykki og dynjandi tónlist á fjölmörgum krám. Á veitingastöðum og pizzastöðum ilmar allt af ítalskri matargerð, og á kaffihúsunum fæst heimsins besta kaffi ásamt girnilegu meðlæti.
Dinna og Helgi eru hokin af skíðareynslu og hafa marga skíðafjöruna sopið enda voru þau ung gefin saman í skíðaskála í Bláfjöllum. Helgi er verðlaunaður keppnishestur á skíðum frá gamalli tíð og fyrrum þjálfari landsliðs og Reykjavíkurliðs. Hann er verkfræðingur og starfar að fjölbreyttum verkefnum á Íslandi. Helgi hefur setið í stjórn Skíðasambands Íslands, reist fljótandi skíðalyftu á Snæfellsjökli og í Kerlingafjöllum og komið að ráðgjöf og hönnun skíðasvæða.
Italía trónir á toppnum hjá þeim hjónum. Ofan á ævintýralegt landslag Dólómítanna, milda suðræna veðurfarið og fjölbreyttu skíðaleiðirnar bætist hin stórfenglega ítalska menning, sagan og syngjandi tungumálið. Og síðast en alls ekki síst einstök og heimsþekkt matar-og vínmenning. Þau taka fagnandi á móti skíðafólki til Madonna og liðsinna og þjónusta af stakri alúð og gleði.
Ef þið eruð með hóp vinsamlega hafið samband á hopar@uu.is.
Úrval Útsýn getur líka skipulagt skíðaferðir á önnur svæði í kringum Verona.