Þráðlausu þrýstimeðferðarstígvélin frá Icelandic Wellness sem fást hjá Heilsu og Útlit veita nýstárlega lausn til að losa um harðsperrur og eymsli eftir harðar æfingar. Íþróttafólk nær þannig skjótari endurheimt og bata frá meiðslum eftir mikla þjálfun. Hér eru kostir þrýstimeðferðar og þráðlausrar tækni sameinaðir en tækið býður upp á þægilega og skilvirka leið til þess að hámarka bata og endurheimt.
Aukið blóðflæði með útreiknuðu loftþrýstinuddi á rétta staði endurnærir vöðvana eftir mikla þjálfun. Öll endurheimt verður þannig hraðari sem losar tafarlaust um vöðvaþreytu og harðsperrur. Stígvélin vinna einnig gegn bólgum og öðrum meiðslum með frábærum árangri.
Með því að flýta endurheimt með þessari snilldartækni í líkamsmeðferðum, nær íþróttafólk að halda markmiðum sínum án hindrana vegna meiðsla eða vöðvaþreytu. Meðferðin gerir fólki því kleift að hámarka árangur sinn þegar kemur að þjálfun líkamans. Tækið hjálpar þér að æfa með meiri skilvirkni þar sem engar tafir verða vegna vöðvaverkja eða eymsla. Þannig nærðu að bæta árangur þinn í íþróttum og allri líkamsrækt svo um munar!
Þráðlausu þrýstimeðferðarstígvélin fást í vefverslun Heilsu og útlit hér.
Heilsa og útlit er að Hlíðasmára 17, Kópavogi, sími 562-6969, netfang heilsaogutlit@heilsaogutlit.is.
Opnunartími: Mánudaga til fimmtudaga frá kl. 9.00-18.00, föstudaga frá kl. 9.00-16.00.