fbpx
Laugardagur 27.júlí 2024
Kynning

BYKO með ánægðustu viðskiptavinina sjötta árið í röð

Kynning
Ritstjórn DV
Miðvikudaginn 18. janúar 2023 15:09

Í flokki byggingavöruverslana hlaut BYKO hæstu einkunnina sjötta árið í röð í Íslensku ánægjuvoninni. Mynd/Stjórnvísi

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Íslenska ánægjuvogin kynnti fyrir helgi niðurstöður mælinga á ánægju viðskiptavina fjörutíu íslenskra fyrirtækja í fjórtán atvinnugreinum á árinu 2022. Í flokki byggingavöruverslana hlaut BYKO hæstu einkunnina sjötta árið í röð og hefur því sigrað óslitið í þeim flokki frá upphafi mælinga í honum.

Síðustu þrjú árin hefur forskot BYKO á keppinautana flokkast undir það sem aðstandendur Íslensku ánægjuvogarinnar skilgreina sem marktækan mun. Það þýðir að BYKO getur lýst sig sem afdráttarlausan sigurvegara í sínum flokki og skartað gylltu merki Íslensku ánægjuvogarinnar; sjálfum „gullverðlaununum“ sem í allri keppni hljóta að vera æðsta takmarkið.

„Það er BYKO mikill heiður að taka við þessari viðurkenningu og við erum stolt af þeirri staðfestu sem endurspeglast í þessum margendurtekna árangri,“ segir Sigurður Brynjar Pálsson forstjóri BYKO. „Við erum þakklát starfsfólki okkar fyrir þeirra frábæru frammistöðu sem og viðskiptavinum okkar fyrir að skynja metnaðinn sem liggur að baki starfseminni og að verðlauna okkur með þessari kærkomnu einkunnargjöf. Við getum nú með stolti lýst því yfir að eiga ánægðustu viðskiptavinina á þeim markaði sem við keppum á en um leið er þetta okkur hvatning til að gera enn betur til að standa undir væntingum og tryggð okkar viðskiptavina,“ segir Sigurður.

60 ára afmæli

BYKO fagnaði 60 ára afmæli á árinu 2022 og að sögn Sigurðar hafa fjölmargar nýjungar litið dagsins ljós á síðustu misserum; má þar nefna sjálfsafgreiðslukassa með reikningsviðskiptum, rafrænt BYKO-kort, rafrænt beiðnakerfi, stórbætta vefverslun, gagnadrifnar lausnir og rafræn mælaborð. „Heildræn stefna BYKO, þar sem viðskiptavinurinn er miðja alls, gerir vörumerkið einstakt og aðgreinir okkur frá samkeppninni því við viljum bjóða bestu heildarupplifun viðskiptavinarins, bæði í framkvæmdum og við fegrun heimilisins. Mikil áhersla er lögð á gagnadrifna markaðssetningu sem byggir á kauphegðun og raunþörfum viðskiptavina. Slagorðið „Gerum þetta saman“ og vörumerkjaloforðið „Það er einfaldast að versla í BYKO“ eru eftir sem áður leiðarljós í öllu okkar markaðsstarfi. Við höfum gert þetta saman í 60 ár og við hlökkum til framtíðarinnar,“ segir Sigurður að lokum.

Íslenska ánægjuvogin er félag í eigu Stjórnvísi og framkvæmd mælinga 2022 var í höndum Prósents.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Kynning
27.03.2024

Dreymir þig um lúxussiglingu um fallegustu eyjur Króatíu? – Gerðu drauminn að veruleika 

Dreymir þig um lúxussiglingu um fallegustu eyjur Króatíu? – Gerðu drauminn að veruleika 
Kynning
27.03.2024

„Algjört saunaæði runnið yfir landsmenn“

„Algjört saunaæði runnið yfir landsmenn“
Kynning
26.01.2024

Vetrarsýning Heklu – Frumsýnum Volkswagen Touareg og rafmagnaðan ID.7

Vetrarsýning Heklu – Frumsýnum Volkswagen Touareg og rafmagnaðan ID.7
Kynning
23.01.2024

Tífalt meira magn af „bótoxi jurtaríkisins“ í nýju serumi frá Nivea

Tífalt meira magn af „bótoxi jurtaríkisins“ í nýju serumi frá Nivea
Kynning
06.11.2023

Æfinga eða keppnisferð íþróttafélaga í útlöndum

Æfinga eða keppnisferð íþróttafélaga í útlöndum
Kynning
29.10.2023

Flýgur með Íslendinga til paradísarinnar Punta Cana í myrkasta skammdeginu – „Ég skildi við kallinn en ekki landið“

Flýgur með Íslendinga til paradísarinnar Punta Cana í myrkasta skammdeginu – „Ég skildi við kallinn en ekki landið“