KS protect er fyritæki sem sérhæfir sig í ásetningu lakkvarnarhúðar á ökutæki. Fyrirtækið var stofnað árið 2018 og fékk fljótlega umboð fyrir stóran bandarískan framleiðanda ceramic efna, sem fyrirtækið hefur notað með góðum áranagri síðan. Í ársbyrjun 2020 er okkur svo boðið af breskum samstarfsaðila að gerast umboðsaðilar fyrir annan stóran bandarískan aðila sem hafði uppá að bjóða vörur sem þóttu skara framúr í prófunum fagaðila í bretlandi sem framkvæmdar voru á virtum rannsóknarstofum.
Úr varð að við flugum út til þjálfunar tvívegis í janúar 2020 og lærðum þar meðhöndlun á Grafín lakkvörn frá bandríska fyrirtækinu Waxedshine. Við byrjuðum svo að bjóða fyrstu viðskiptavinum okkar uppá slíkar meðfeðir í febrúar 2020. Okkur varð fljótlega ljóst að Grafín yrði það sem við myndum leggja áherslu á til framtíðar, enda kappkostum við að bjóða okkar viðskiptavinum eingöngu uppá vandlega prófaðar gæða vörur sem duga við íslenskar aðstæður. Það sem við höfum séð undafarið ár eru algjörir yfirburðir grafíns í samanburði við ceramic.
En hvað hefur grafín fram yfir ceramic? Minni rafleiðni sem þýðir minni rykmyndun – minni hitamyndun á yfirborði – afgerandi minni líkur á vatnsblettamyndun – meiri vatnsfráhrindingu – minni viðloðun – meiri sveigju sem eykur ending til muna og auðveldar viðgerðir á yfirborði – meiri styrkur efnaþol og ending.
Grafín húðin er með Self heal yfirborði, sem þýðir að smárispur má hita úr henni með innrauðum hitalampa. Ábyrgð er á húðinni til 5 ára án aukakostnaðar á ábyrgðartíma.
Grafín er án efa það efni sem allir framleiðendur lakkvarnarefna munu keppast við að markaðssetja næstu árin en einungis færustu efnafræðingar heims hafa náð því að framleiða Grafín enn sem komið er.
Einnig bjóðum við uppá vandaðar bílahreinsivörur frá framleiðandanum waxedshine sem er fyrir fólk með kröfur sjá nánar á www.ksprotect.is. Eigendur KS Protect – Kristján Guðjón Bjarnason og Sigurjón Larsen Þórisson
Nú er eitt ár frá því að við byrjuðum að bjóða lakkvörn framtíðarinnar á Íslandi. Af því tilefni veitum við 20% afslátt af meðferðum út febrúr.
Tryggðu þér tíma í febrúar í síma 844-4456.