fbpx
Fimmtudagur 24.apríl 2025
Kynning

Núna er tíminn fyrir Skanva!

Kynning
Jóhanna María Einarsdóttir
Fimmtudaginn 9. apríl 2020 12:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Það þarf ekki að kosta formúu að skipta um litla þríhyrningslaga gluggann í forstofunni eða hurðina sem er aðeins stærri en hefðbundið telst. Danska fyrirtækið Skanva (Vinduesgrossisten í DK) opnaði byltingarkennda netverslun fyrir um sjö árum með sérsmíðaða glugga og hurðir og hefur síðan boðið viðskiptavinum sínum upp á hágæða vörur milliliðalaust og á afar samkeppnishæfu verði.

 

Bylting á Íslandi

Netverslanir Skanva eru í Danmörku, Þýskalandi og Noregi. Fyrir tveimur árum kom Skanva til Íslands og gjörbylti íslenskum markaði í sölu glugga og hurða. Skanva er fyrsta netverslunin á Íslandi þar sem fást gluggar og hurðir eftir sérmáli. „Við liggjum ekki með neitt á lager enda eru allar okkar vörur sérsmíðaðar undir danskri stjórn í verksmiðjunni í Hvíta-Rússlandi. Við hönnum alla glugga og hurðir hér í Danmörku ásamt því að kaupa hurðarhúna, lamir og annað frá dönskum og þýskum framleiðendum. Ferlið á vefsíðunni er sáraeinfalt og verðið kemur skemmtilega á óvart. Þess má geta að ef þú finnur ekki eitthvað á vefsíðunni sem þú hefur í huga, hvort sem það er ákveðinn litur, áferð eða efniviður, þá er um að gera að senda okkur fyrirspurn því við getum framleitt næstum hvað sem er,“ segir Hanna G. Guðmundsdóttir Overby, markaðsstjóri á Íslandi fyrir Skanva.

Hanna G. Guðmundsdóttir Overby, markaðsstjóri Skanva á Íslandi.

Einfalt að fá verðtilboð með reiknivélinni

  1. Þú velur efnivið.
  2. Síðan tegund glugga eða hurðar.
  3. Útlit glugga/hurðar.
  4. Færir loks inn mál glugga/hurðar og ferð í gegnum spurningalista þar sem þú velur lit, glertegund, gerð festingar og margt fleira.
  5. Þú færð nákvæmt verðtilboð.

„Ef fólk stendur í framkvæmdum yfir lengri tíma eða er í vafa um val á festingum, listum eða öðru, er hægt að geyma vöruna í körfu á síðunni uns hún er greidd. Þar til er hægt að gera allar nauðsynlegar breytingar. Í sýningarsalnum á Granda má skoða þær grunnlausnir sem við bjóðum upp á. Einnig gefur sölumaður upplýsingar og góð ráð varðandi gerð, samsetningu, litaval og ýmislegt annað sem þú gætir verið í vafa um. Þá er ekkert því til fyrirstöðu að senda eða koma með eigin hugmyndir, hvort sem þær eru teiknaðar af fagaðila eða einfaldlega rissaðar upp á servíettu og fá okkur til þess að teikna upp og hanna glugga eða hurðir eftir því. Þessi þjónusta kostar ekkert aukalega.“

Það geta allir gert þetta!

„Vörurnar frá Skanva eru hannaðar með það í huga að þær séu einfaldar í uppsetningu og því er það ekki eingöngu á færi fagmanna að nýta sér þjónustu okkar. Þá erum við með youtube rás þar sem sjá má skref fyrir skref leiðbeiningar um hvernig á að setja upp Skanva-glugga eða -hurðir. Einnig má finna góðar ráðleggingar um viðhald til þess að tryggja það að hurðir og gluggar endist eins lengi og vel og mögulegt er.“

 

Gríðarmargir kostir við að kaupa frá Skanva!

  • Einn stærsti kostur Skanva er hagkvæmt og samkeppnishæft verð. Kaupferlið og uppsetning er einföld og því verða dýrir milliliðir, sem taka prósentur af sölunni, ónauðsynlegir. Skanva er aðallega netverslun og við starfrækjum litla sýningarsali. Allt er framleitt eftir þörfum og því geymum við ekki tilbúnar vörur á lager. Húsnæðiskostnaði við sýningarsali og vöruhús er haldið í lágmarki, sem skilar sér í hagkvæmara verði til neytenda. Finnirðu vörur í sambærilegum gæðum á lægra verði, frá öðrum framleiðendum, bjóðum við sama verð.
  • Þú veist undir eins hvað varan kostar með reiknivélinni okkar, eða eftir að hafa rætt við sölumann. Oft getur tekið mánuði að fá verðtilboð frá iðnaðarmanni eða öðrum endursöluaðilum, en hjá Skanva færðu verðtilboð um leið og þú veist hvað þú vilt.
  • Allar vörur Skanva eru sérsniðnar að kröfum viðskiptavinarins. Þú þarft því hvorki að sætta þig við takmarkandi efnis- eða litaval né fyrirframgefin mál. Þú færð nákvæmlega það sem passar fyrir þig.
  • Skanva-gluggar og -hurðir eru slagveðursprófaðar. Það sem kemur úr verksmiðjunni okkar stenst því öfgafyllstu veðuraðstæður Íslands með prýði. Tíu ára ábyrgð er á öllum gluggum og hurðum úr tré, tré/áli og plasti. Viðurinn sem notaður er í vörurnar er að auki hægvaxandi gæðaviður sem er þekktur fyrir styrk og endingu.
  • Skanva-gluggar og -hurðir eru allar útbúnar hágæða öryggisfestingum sem gera innbrotsþjófum lífið leitt og verða til þess að þeir gefast upp og leita á önnur mið.

Láttu senda heim að kantsteini!

Skanva er í samstarfi við Samskip. Viðskiptavinir geta valið um að sækja sjálfir pöntun í Samskip við Kjalarvog, eða fá sent heim að kantsteini þar sem vörur eru afhentar þar sem auðvelt aðgengi er fyrir báða aðila. „Þetta er stórsniðug lausn fyrir þá sem búa úti á landi, enda kappkostar Skanva að þjónusta alla viðskiptavini sína, óháð búsetu.“

 

Núna er tíminn!

„Nú er tíminn til þess að huga að framkvæmdum fyrir sumarið. Gluggaísetning og hurðaskipti er best að framkvæma yfir sumarmánuðina þegar veðuraðstæður eru sem bestar. Til að tryggja að vörurnar séu komnar til landsins í tæka tíð er tími til kominn að kynna sér lausnirnar sem við höfum upp á að bjóða.“

Skoðaðu úrvalið og fáðu verðtilboð samstundis á skanva.is

Sýningarrými Skanva er að Fiskislóð 31 E, 101 Reykjavík.

Sími: 558-8400

Fáðu hugmyndir á Instagram-síðunni okkar @skanva.is

Facebook: Skanva.is

Youtube: Skanva – Gluggar og hurðir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Kynning
18.06.2024

Mikilvægt að byrja snemma að spá í lífeyri – Því yngri, því meira færðu fyrir 1.000 kallinn

Mikilvægt að byrja snemma að spá í lífeyri – Því yngri, því meira færðu fyrir 1.000 kallinn
Kynning
18.06.2024

Madonna di Campiglio – Brekkur við allra hæfi og líflegur og skemmtilegur bær

Madonna di Campiglio – Brekkur við allra hæfi og líflegur og skemmtilegur bær
Kynning
14.05.2024

Vodafone gerir tímamótasamning um internettengingar í bíla

Vodafone gerir tímamótasamning um internettengingar í bíla
Kynning
09.05.2024

UAK 10 ára – Ráðstefna á laugardaginn

UAK 10 ára – Ráðstefna á laugardaginn
Kynning
28.12.2023

Gefa bretti af flugeldum að verðmæti 243.500kr

Gefa bretti af flugeldum að verðmæti 243.500kr
KynningMatur
22.12.2023

Skúbblerone er nýr hátíðarís hjá Skúbb

Skúbblerone er nýr hátíðarís hjá Skúbb