fbpx
Laugardagur 23.nóvember 2024
Kynning

Sundlaug Patreksfjarðar: Stórkostlegt útsýni yfir fjörðinn og bæinn

Kynning
Jóhanna María Einarsdóttir
Föstudaginn 12. apríl 2019 12:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Sundlaug Patreksfjarðar er líklega ein best staðsetta sundlaug á landinu og þó víðar væri leitað, en hún er byggð í hlíðina rétt við bæjarstæði Patreksfjarðar. Útsýnið frá lauginni og yfir fjörðinn er hreint út sagt stórkostlegt og sömuleiðis yfir bæinn. „Laugin er girt með gleri svo manni líður næstum eins og laugin sé samtvinnuð hafinu fyrir neðan. Þú horfir bara beint út á fjörðinn,“ segir Geir Gestsson.

Líf í firðinum

„Það er ekki óalgengt að sjá hvali synda hérna inn fjörðinn rétt í um 100–200 metra fjarlægð. Um daginn voru fjórir háhyrningar að leika sér í höfninni. Þetta vekur alltaf kátínu meðal gesta okkar, sérstaklega á meðal ferðamannanna.

Það er alveg geggjað að mæta til vinnu eldsnemma á morgnana að sumarlagi; sólin er að skríða upp fyrir fjallstoppana og lýsir upp fjörðinn gullfallegri bleikri birtu. Þetta er útsýnið sem blasir við þar sem þú marar við laugarbrúnina og horfir yfir fjörðinn. Það er líka eiginlega alveg ómögulegt fyrir starfsfólkið að vera í vondu skapi hérna með svona fyrir augum daglega.“

Notaleg útisundlaug

Þar sem laugin á Patreksfirði er hugsuð sem skólasundlaug þá er hitastigið á henni örlítið hærra en í flestum öðrum laugum. „Við erum með hana aðeins hlýrri fyrir krakkana, en það gerir það líka að verkum að það er hægt að vera í lauginni þó svo maður sé ekki á hörkusundi.“

Afslappað í sveitinni

Sundlaug Patreksfjarðar státar einnig af eimbaði, tveimur stórum setupottum sem og vaðlaug. „Á góðviðrisdögum draga sumir sólbekkina út í vaðlaugina til að veiða nokkrar freknur á kroppinn. Andinn í sveitinni er svo afslappaður að fólk kemst upp með ýmislegt.“

Það er augljóst að það er alveg gráupplagt að skella sér í sund yfir páskana. „Við tökum vel á móti öllum hér á Patreksfirði og ég mæli með að fólk leggi smá lykkju á leið sína á leiðinni á Aldrei fór ég suður til þess að upplifa þessa stórkostlegu sundlaug,“ segir Geir.

Komdu í sund!

Aðalstræti 55, 450 Patreksfjörður.

Sími: 450-2350 / 456-1301

Netpóstur: brattahlid@vesturbyggd.is

Opnunartími: Mán–fim: 08.00–09.00/16.00–21.00, fös: 08.00–09.00/16.00–19.30 og lau og sun:  11.00–15.00.

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Kynning
27.03.2024

„Algjört saunaæði runnið yfir landsmenn“

„Algjört saunaæði runnið yfir landsmenn“
Kynning
19.03.2024

Þú færð allt fyrir ferminguna á Boozt.com

Þú færð allt fyrir ferminguna á Boozt.com
Kynning
29.10.2023

Flýgur með Íslendinga til paradísarinnar Punta Cana í myrkasta skammdeginu – „Ég skildi við kallinn en ekki landið“

Flýgur með Íslendinga til paradísarinnar Punta Cana í myrkasta skammdeginu – „Ég skildi við kallinn en ekki landið“
Kynning
27.10.2023

Jólabjór og opið til miðnættis í Nýju Vínbúðinni

Jólabjór og opið til miðnættis í Nýju Vínbúðinni