fbpx
Miðvikudagur 04.desember 2024
Kynning

Íslenski draumurinn: Byrjaði með fimm bíla fyrir níu árum en er með yfir 2.000 bíla í dag

Kynning
Hildur Hlín Jónsdóttir
Mánudaginn 25. nóvember 2019 12:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Í nýjasta þættinum af Íslenska drauminum fer Magnús Sverrir Þorsteinsson yfir ótrúlega sögu sína og Blue Car Rental, en bílaleigan hefur stækkað gríðarlega hratt síðustu ár.

Íslenski draumurinn er hlaðvarp sem þeir Sigurður Sindri Magnússon og Eyþór Jónsson standa á bak við, en í þáttunum tekur Sigurður viðtöl við íslenska frumkvöðla og viðskiptamenn og fer yfir þeirra feril.

Sigurður Sindri Magnússon er stjórnandi og annar framleiðandi þáttanna. Sigurður stofnaði sitt fyrsta fyrirtæki árið 2013 og hefur síðan verið í fyrirtækjarekstri ásamt því að útskrifast sem viðmótsforritari frá Vefskólanum árið 2017. Í dag rekur hann ferðaþjónustufyrirtækið Deluxe Iceland. Deluxe Iceland var stofnað árið 2015 og sérhæfir sig í prívat lúxusferðum um Ísland með ferðamenn sem vilja upplifa það besta af landinu á sem þægilegastan hátt.

Sigurður Sindri Magnússon er stjórnandi og annar framleiðandi þáttanna
Sigurður Sindri Magnússon er stjórnandi og annar framleiðandi þáttanna

„Mér fannst vanta nánari innsýn í heim þeirra aðila sem hafa stofnað og rekið sitt eigið fyrirtæki á Íslandi. Við fórum af stað með fjóra viðtalsþætti þar sem ég vel í þættina viðmælendur sem vekja áhuga minn og hafa náð góðum árangri á sínum viðskiptaferli. En við munum einnig gefa út umræðuþætti, þar sem við leggjum áherslu á ákveðið umræðuefni og fáum til okkar góða gesti til þess að kafa dýpra í hvert umræðuefni fyrir sig. Umræðuþættirnir eru um allt sem tengist fyrirtækjarekstri, hugarfari og hvernig þú getur náð lengra í lífinu. Þetta er bara byrjuninn,“ segir  Sigurður.

Fer yfir söguna

Magnús Sverrir Þorsteinsson er stofnandi og eigandi bílaleigunnar Blue Car Rental og Blue Apartments. Magnús fer yfir söguna, allt frá fyrstu dögum í rekstri til þess hvernig það er að reka eina stærstu bílaleigu landsins.

Magnús, eða Maggi í Blue eins og hann er stundum kallaður, fór af stað með aðeins fimm bíla árið 2010 en síðan þá hefur bílaleigan vaxið gríðarlega og telur bílaflotinn yfir tvö þúsund bíla í dag, en það gerir Blue Car Rental eina af stærstu bílaleigum landsins.

Blue Car Rental var stofnað árið 2010 af Magnúsi og eiginkonu hans, Guðrúnu Sædal Björgvinsdóttur. Það má segja að vöxtur bílaleigurnar hafi verið ævintýralegur en velta fyrirtækisins tvöfaldaðist ár frá ári og hefur bílaleigan alltaf skilað hagnaði sem telst mikið afrek á markaði sem svona gríðarlega mikil samkeppni ríkir á.

Steinþór Jónsson – Eigandi Hótel Keflavíkur og Diamond Suites sem var í þætti númer tvö.

Hægt er að sjá alla næstu þætti og lesa meira um viðmælendur á síðunni  islenskidraumurinn.is, en Íslenska drauminn er einnig hægt að nálgast á  öllum helstu streymisveitum.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Kynning
14.05.2024

Vodafone gerir tímamótasamning um internettengingar í bíla

Vodafone gerir tímamótasamning um internettengingar í bíla
Kynning
09.05.2024

UAK 10 ára – Ráðstefna á laugardaginn

UAK 10 ára – Ráðstefna á laugardaginn
Kynning
27.03.2024

Dreymir þig um lúxussiglingu um fallegustu eyjur Króatíu? – Gerðu drauminn að veruleika 

Dreymir þig um lúxussiglingu um fallegustu eyjur Króatíu? – Gerðu drauminn að veruleika 
Kynning
27.03.2024

„Algjört saunaæði runnið yfir landsmenn“

„Algjört saunaæði runnið yfir landsmenn“
Kynning
28.12.2023

Gefa bretti af flugeldum að verðmæti 243.500kr

Gefa bretti af flugeldum að verðmæti 243.500kr
KynningMatur
22.12.2023

Skúbblerone er nýr hátíðarís hjá Skúbb

Skúbblerone er nýr hátíðarís hjá Skúbb
Kynning
06.11.2023

Æfinga eða keppnisferð íþróttafélaga í útlöndum

Æfinga eða keppnisferð íþróttafélaga í útlöndum
Kynning
29.10.2023

Flýgur með Íslendinga til paradísarinnar Punta Cana í myrkasta skammdeginu – „Ég skildi við kallinn en ekki landið“

Flýgur með Íslendinga til paradísarinnar Punta Cana í myrkasta skammdeginu – „Ég skildi við kallinn en ekki landið“