Þakrennur verða alltaf að vera tilbúnar til að flytja burt mikið magn af vatni. Ef ekki þá geta orðið miklar skemmdir. En rennur safna í sig leðju, sandi, laufi ásamt rusli og geta orsakað raka- og vatnsskemmdir sem skemma út frá sér þakkanta og veggi.
„Því er nauðsynlegt að hreinsa þakrennurnar sínar einu sinni til tvisvar á ári í langflestum tilfellum“ segir Guðjón Hrafnsson, eigandi fyritækisins Rennurheinsun. En fyrirtækið var stofnað fyrir ári síðan og eru tveir starfsmenn sem starfa við þetta.
„Rennuhreinsun er eins og að smyrja bíl, það er hægt að sleppa því í einhvern tíma en það getur verið mjög dýrkeypt. Auk þess þá endast þær betur ef þær fá reglulega hreinsun.“ Segir Guðjón. Starfmenn fyrirtækisins mæta bæði í heimahús eða í stærri fyrirtækjahúsnæði með sérstakan búnað.
Getur verið hættulegt að fara upp í stiga
„Við erum með sérstakan búnað sem sýgur öll óhreinindi upp úr rennunum á hreinlegan hátt og við klárum þetta oftast á 2 – 3 tímum,“ segir Guðjón. „Þessi vinna getur verið erfið og það geti verður oft sóðalegt án réttu áhaldanna en einnig getur verið hættulegt að fara upp í stiga, jafnvel á einnar hæðar húsi og því eflaust betra að ráða fagfólk í starfið.“
„Án þess að fólk gerir sér grein fyrir því þá getur vel verið lokað fyrir afrennsli eða einhver stífla búin til sem hefur afdrifaríkar afleiðingar. En blessunarlega er veðrið svona gott það sem af er sumri, en það kemur að rigningu og svo koma haustlægðir. “ segir Guðjón.
„Fólk er gjarnt á að geyma þessi þrif of lengi og þá er vatn líklega að leka einhvers staðar meðfram húsi sem getur fljótt orðið slæmt. Svo er verið að fara illa með sjálfar rennurnar og hvoru tveggja er þá fljótt að verða dýrkeypt“, segir Guðjón.
Um þessar mundir eru þeir hjá Rennuhreinsun með tilboð og því er hægt að fá rennuhreinsun á einbýlishúsi eða raðhúsi á 29.900 í stað 49.900 kr. Því er um að gera að nýta sér þetta hörkutilboð.
Nánari upplýsingar um verð eða annað er að finna á heimasíðu fyrirtækisins https://www.rennuhreinsun.is/
Hægt er að senda tölvupóst á sala@rennuhreinsun.is
Eða hringja í 783-0091