fbpx
Laugardagur 21.desember 2024
Kynning

Fimmtugsafmæli fagnað á ferð: Hleypur, hjólar og syndir 100.050 metra

Kynning
Jóhanna María Einarsdóttir
Sunnudaginn 2. júní 2019 12:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Garðbæingurinn Halldóra Gyða Matthíasdóttir Proppé, framkvæmdastjóri Samstarfsnets velferðarsviðs Reykjavíkurborgar, er mikil hlaupadrottning. Fjallahlaup, þríþraut (götuhlaup, hjólreiðar og sund) og gönguskíði eiga hug hennar allan eins og sjá má á heimasíðu hennar, halldora.is.

Frá ljósastaurum til fjallahlaupa

„Fyrir 10 árum, þegar ég varð 40 ára, byrjaði ég á því að breyta mataræðinu og fór svo í kjölfarið að hreyfa mig. Fyrst gekk ég og hljóp á milli ljósastaura. Síðan fór ég í einstakan hlaupahóp, Bíddu aðeins, árið 2011 og sama ár í fyrsta maraþonið og fyrsta Laugavegshlaupið. Eftir það var ekki aftur snúið.“

Á Laugavegshlaupið sérstakan stað í hjarta þínu?

„Leiðin frá Landmannalaugum í Þórsmörk, þ.e. Laugavegshlaupið, er stórkostleg leið.  Landslagið, litrófið í landslaginu, útsýnið, fjöllin, vötnin og árnar, allt er þetta stórfenglegt fyrir utan það að þjónustan og starfsfólkið í hlaupinu er svo hvetjandi og yndislegt.“

Bratti og ógnar hiti

Halldóra hleypur ekki bara á íslensk fjöll.

„Helsti munurinn er hæð fjallanna og veðurfar, því alls staðar er stórkostlegt útsýni. Fjallahlaupin í Ölpunum eru mun brattari og fjöllin hærri. Ég hef einnig lent í því að hlaupa í mjög miklum hita, um og yfir 30 gráðum, sem er ofboðslega heitt inni í fallegum dölum þar sem er engin vindkæling.

Hér heima æfum við okkur í Esjunni, Kerhólakambur er besta og brattasta æfingin fyrir þessi erlendu fjallahlaup. Til að undirbúa líkamann undir þennan mikla hita þarf að fara í gufubað og sauna.“

Fimmtug í Miðnæturhlaupi

„Svo skemmtilega vill til að 20. júní, þegar Miðnæturhlaup Suzuki fer fram, fagna ég 50 ára afmælinu mínu. Af því tilefni ætla ég að hlaupa 50 km, eða fimm 10 km hringi. Ég ætla að hjóla 50 km og synda 50 metra. Ég mun setja upp ákveðið tímaplan með upplýsingum um leiðirnar og bjóða vinum mínum að taka þátt, þ.e. taka einn hring eða fleiri með mér.  Síðasti hringurinn verður hlaupinn í Miðnæturhlaupinu, 10 km leiðin, og hvet ég að sjálfsögðu alla til að fjölmenna þangað. Eftir Miðnæturhlaupið ætla ég að synda 50 metrana yfir í saltpottinn í Laugardalslauginni.“

Halldóra hvetur alla til að taka þátt með sér og í stað afmælisgjafa að styrkja vin sinn, Heimi Jónasson, sem glímir við taugahrörnunarsjúkdóm, á trausturvinur.is

Hægt er að fylgjast með Halldóru á samfélagsmiðlunum:

Instagram: @hallmatt

Twitter: @hallmattproppe

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Kynning
14.05.2024

Vodafone gerir tímamótasamning um internettengingar í bíla

Vodafone gerir tímamótasamning um internettengingar í bíla
Kynning
09.05.2024

UAK 10 ára – Ráðstefna á laugardaginn

UAK 10 ára – Ráðstefna á laugardaginn
Kynning
27.03.2024

Dreymir þig um lúxussiglingu um fallegustu eyjur Króatíu? – Gerðu drauminn að veruleika 

Dreymir þig um lúxussiglingu um fallegustu eyjur Króatíu? – Gerðu drauminn að veruleika 
Kynning
27.03.2024

„Algjört saunaæði runnið yfir landsmenn“

„Algjört saunaæði runnið yfir landsmenn“
Kynning
28.12.2023

Gefa bretti af flugeldum að verðmæti 243.500kr

Gefa bretti af flugeldum að verðmæti 243.500kr
KynningMatur
22.12.2023

Skúbblerone er nýr hátíðarís hjá Skúbb

Skúbblerone er nýr hátíðarís hjá Skúbb
Kynning
06.11.2023

Æfinga eða keppnisferð íþróttafélaga í útlöndum

Æfinga eða keppnisferð íþróttafélaga í útlöndum
Kynning
29.10.2023

Flýgur með Íslendinga til paradísarinnar Punta Cana í myrkasta skammdeginu – „Ég skildi við kallinn en ekki landið“

Flýgur með Íslendinga til paradísarinnar Punta Cana í myrkasta skammdeginu – „Ég skildi við kallinn en ekki landið“