fbpx
Fimmtudagur 12.desember 2024
Kynning

Flutningur.is – Traustur félagi í flutningum

Kynning
Ágúst Borgþór Sverrisson
Föstudaginn 22. mars 2019 18:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Flutningur.is er gróin sendibílastöð sem hefur veitt trausta þjónustu í yfir þrjá áratugi og hefur yfir að ráða afar fjölbreyttum bílaflota fyrir hin ýmsu verkefni. Auk þess er stöðin með öll nauðsynleg léttitæki sem þörf er á við flutninga, hvort sem er á búslóðum eða við vöruflutninga.

Stöðin býður upp á allar stærðir sendibíla sem henta bæði í lítil og stór verkefni. Bílstjórarnir eru reynslumiklir og færir og leggja sig fram um að veita góða þjónustu. Þeir sem standa í búslóðaflutningum geta treyst því að búslóðin sé flutt hratt en af varkárni á milli staða.

 

Vöruflutningar

Flutningur.is sér um að losa gáma hjá skipafélögum og koma vörunni til fyrirtækja og einstaklinga. Hægt er að flytja tvo gáma í einu og losa þá við húsdyr fyrirtækja og einstaklinga fyrir mjög hagstætt verð. Flutningur.is hefur yfir að ráða góðum gámalyftum og ýmsum öðrum hjálparbúnaði við flutninga og fylgist vel með nýjungum og þróun tækjabúnaðar á þessu sviði.

Ef þú þarft að flytja eitthvað, stórt eða lítið, búslóð, vörur eða eitthvað annað, þá er Flutningur.is líklega mjög heppilegur kostur fyrir þig. Nánari upplýsingar eru á  vefsíðunni flutningur.is og í síma 575-3000.

 

Nokkur góð ráð varðandi flutninga frá Flutningi.is:

  1. Sankaðu að þér sterkum kössum í nokkrum stærðum. Einnig er gott að hafa eftirfarandi við höndina þegar pakkað er: kúluplast, dagblöð, skæri, sterkt límband og góðan merkipenna.
  2. Pakkaðu þungum hlutum, eins og bókum, í minni kassa svo þeir verði ekki of þungir. Í stærri kössum skulu þyngri hlutir vera neðst og þeir léttari efst. Pakkið hverjum hlut í dagblöð eða kúluplast ef þeir eru viðkvæmir. Ef of rúmt er um hluti í kassanum, fylltu þá upp í hann með dagblöðum eða öðru slíku.
  3. Pakkaðu öllu því sem á að fara í sama herbergi í sama kassa og merktu hann herberginu. Taktu fyrir eitt herbergi í einu, pakkaðu fyrst litlum munum til að koma þeim frá. Merktu utan á kassann hvað er í honum.
  4. Pakkaðu og merktu sérstaklega þá kassa sem opna á fyrst af öllum þegar komið er á áfangastað. Í kassanum eiga að vera ómissandi hlutir sem notaðir voru fram á síðasta dag, líkt og uppþvottalögur, klósettpappír, plastdiskar og hnífapör og ýmislegt það sem fjölskyldan þarf að nota áður en hægt er að taka upp úr öllum kössunum.
  5. Þegar stærri hlutir eru teknir í sundur, líkt og borð, hillur og skápar, er gott að geyma verkfæri í einum vel merktum poka eða kassa til að auðvelda samsetningu á nýja staðnum. Skrúfum er gott að tylla og jafnvel líma aftur í þau göt sem þær eiga að vera í.
  6. Settu allan rafeindabúnað eins og fjarstýringar, millistykki og straumbreyta á einn stað.
  7. Staflaðu kössunum þegar búið er að loka þeim. Gott er að nýta eitt herbergi undir kassana, þannig er hægt að klára að þrífa hinn hluta hússins.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Kynning
14.05.2024

Vodafone gerir tímamótasamning um internettengingar í bíla

Vodafone gerir tímamótasamning um internettengingar í bíla
Kynning
09.05.2024

UAK 10 ára – Ráðstefna á laugardaginn

UAK 10 ára – Ráðstefna á laugardaginn
Kynning
27.03.2024

Dreymir þig um lúxussiglingu um fallegustu eyjur Króatíu? – Gerðu drauminn að veruleika 

Dreymir þig um lúxussiglingu um fallegustu eyjur Króatíu? – Gerðu drauminn að veruleika 
Kynning
27.03.2024

„Algjört saunaæði runnið yfir landsmenn“

„Algjört saunaæði runnið yfir landsmenn“
Kynning
28.12.2023

Gefa bretti af flugeldum að verðmæti 243.500kr

Gefa bretti af flugeldum að verðmæti 243.500kr
KynningMatur
22.12.2023

Skúbblerone er nýr hátíðarís hjá Skúbb

Skúbblerone er nýr hátíðarís hjá Skúbb
Kynning
06.11.2023

Æfinga eða keppnisferð íþróttafélaga í útlöndum

Æfinga eða keppnisferð íþróttafélaga í útlöndum
Kynning
29.10.2023

Flýgur með Íslendinga til paradísarinnar Punta Cana í myrkasta skammdeginu – „Ég skildi við kallinn en ekki landið“

Flýgur með Íslendinga til paradísarinnar Punta Cana í myrkasta skammdeginu – „Ég skildi við kallinn en ekki landið“