Keppendur frá 14 löndum og 3 heimsálfum taka þátt í Hengill Ultra
Algjör metskráning er í utanvegahlaupið Hengil Ultra sem haldið er í Hveragerði þann 8. september næstkomandi. en keppendur koma meðal annars alla leið frá Nýja Sjálandi til að taka þátt í keppninni í ár. Fyrir utan metfjölda þátttakenda þá eru keppendur frá 15 þjóðlöndum skráðir til leiks. Þeir koma frá Bandaríkjunum, Kanada, Nýja Sjálandi, Danmörku, Póllandi, Frakklandi, Spáni, Sviss, Bretlandi, Þýskalandi, Austurríki, Tékklandi, Færeyjum og auðvitað Íslandi.
Hengill Ultra er lengsta utanvegahlaup á Íslandi, en þó er boðið upp á sex mismunandi keppnisleiðir og möguleika: 100 kílómetra, 50, 25, 10 og svo 5 kílómetra, en síðan er 4 sinnum 25 kílómetra boðhlaup sem er nýjung í mótinu í ár. Þannig er 25 kílómetra braut Hengils Ultra í sjálfum hlaup í gegnum Reykjadalinn, þá fallegu náttúrperlu og upp að Ölkelduhnjúk og í kringum hann. En þá hlaupaleið segja gárungarnir að sé eina utanvega hlaupaleiðin í heiminum með innbyggðum heitum pottum.
Hlaupaleið
Byrjunarreitur allra vegalengda og mótsstjórn verður við veitingastaðinn og gistiheimilið Skyrgerðina í hjarta Hveragerðis. Gjafapoki með óvæntum glaðningi frá samstarfsaðilum er innifalinn í skráningu fyrir alla þá sem skrá sig fyrir miðnætti sunnudaginn 2. september. Hengill Ultra er síðasta stóra hlaup sumarsins og má því segja að þetta verði sannkölluð uppskeruhátíð íslenskra hlaupara.
Heilmargt í boði fyrir keppendur
Eftir keppni er öllum keppendum boðið í sveittan borgara með blóði, svita og tárum á „The Finish Line Burger Joint“ sem er besta POP-UP borgarabúllan á landinu. Öllum keppendum er boðið í sund og chill í lystigarðinum í Hveragerði. Verðlaunaafhending og grillveisla fyrir keppendur og aðstandendur verður svo kl. 17. Tímatökubúnaður verður notaður og allir hlauparar hlaupa með tímatökuflögur. Þá er líka dregið úr glæsilegum brautarvinningum í verðlaunaafhendingunni. Þannig að allir fá eitthvað til minningar um þátttökuna í þessum mikla afrekshlaupi.
Slagorð hlaupsins er „Allir hlaupa, allir vinna og allir velkomnir.“
UTMB punktar
Þátttaka í 25, 4X25, 50 og 100 kílómetra vegalengdunum í Hengill Ultra tryggir keppendum þátttökupunkta í hinum heimsfrægu Mont Blanc hlaupum. Fjöldi hlaupara kemur erlendis frá til að taka þátt í Hengill Ultra því slík punktagjöf býðst ekki hvar sem er í heiminum. Hengill Ultra, Mount Esja Ultra og Laugavegshlaup ÍBR eru einu hlaupin á Íslandi sem státa af því samstarfi við þetta rómaða stórmót utanvegahlaupara. Samstarfið við UTMB tryggir keppendum eftirfarandi punktafjölda:
Finna má allar frekari upplýsingar um hlaupið og skráningu hér.
ALLT UM HLAUPIÐ OG SKRÁNINGAR Á www.hengillultra.is