Bóksala stúdenta er staðsett í hjarta háskólasamfélagsins, á Háskólatorgi, sem er við hlið aðalbyggingar Háskóla Íslands. Þangað sækir fjölbreyttur hópur fólks, stúdentar, starfsfólk HÍ, nágrannar og margir aðrir, enda torgið öllum opið og þar lífleg og skemmtileg stemning alla daga.
„Við skilgreinum okkur sem Bóksölu allra stúdenta, þjónustum alla nemendur og útvegum bækur og önnur námsgögn fyrir nemendur allra háskóla á Íslandi,“ segir Óttarr Proppé verslunarstjóri. „Sumir telja vegna nafnsins að við séum eingöngu bóksala fyrir HÍ, en svo er ekki, við erum fyrir alla.“
„Það sem mér finnst skemmtilegast við Bóksölu stúdenta er hvað hún þjónustar samfélagið á margan hátt, bæði háskólasamfélagið, alla námsmenn, þá sem búa í nágrenninu og almennt þá sem hafa áhuga á bókum,“ segir Óttarr. „Það er góð og skemmtileg stemning hjá okkur, eins og við viljum hafa það, alls konar fólk, bækur, leikföng, ritföng og hvaðeina, og bókakaffið okkar er falið leyndarmál,“ bætir hann við, en Bókakaffi stúdenta er í samstarfi við Te & Kaffi og með vörur og vélar frá þeim.
Hjá Bóksölu stúdenta fást ritföng og skólavörur fyrir öll skólastig, og alls konar bækur, bæði fræðibækur og almennar bækur, en að sögn Óttars eru um 12–15 þúsund titlar til í versluninni hverju sinni. Fáist bókin ekki í versluninni má nýta sér pöntunarþjónustuna.
„Við erum með öfluga sérpöntunarþjónustu og getum útvegað flestar fáanlegar bækur,“ segir Óttarr, en sú þjónusta er vinsæl og vex sífellt, enda býr bóksalan yfir öflugum vef og góðum tengslum við innlenda og erlenda útgefendur og forlög. „Áherslan er að við viljum þjónusta alla og útvega allar bækur sem óskað er eftir með sérstakri áherslu á fræðibækur.
Þessa dagana er allt að fara af stað, fólk á öllum aldri að byrja aftur í námi, sumir í fyrsta sinn og aðrir að koma aftur eftir mislanga fjarveru,“ segir Óttarr. „Þetta er skemmtilegur og lifandi tími, maður skynjar eftirvæntingu og það er mikið að gerast enda nýtt tímabil að hefjast. Það er gaman að vera þátttakandi í því.“
Bóksala stúdenta er með útibú í Háskólanum í Reykjavík við upphaf skólaárs og einnig eru bókalistar háskólanna komnir á vef Bóksölunnar. „Við finnum að fólk er að komast í gírinn, byrjað að undirbúa sig fyrir veturinn og við erum tilbúin til að taka á móti því.“
Bóksala stúdenta er á Háskólatorgi, Sæmundargötu 4. Síminn er 570-0777 og netfangið boksala@boksala.is. Opið er virka daga frá kl. 9–18, en alltaf er opið í vefversluninni á boksala.is