fbpx
Miðvikudagur 12.febrúar 2025
FókusKynning

Rómantískt Valentínusarkvöld á Lækjarbrekku

Kynning
Ágúst Borgþór Sverrisson
Föstudaginn 9. febrúar 2018 08:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Töluverðar áherslubreytingar hafa orðið á hinum gróna og rómaða veitingastað Lækjarbrekku frá því nýir rekstraraðilar tóku við staðnum, fyrir um ári. „Við leggjum mikla áherslu á ferskt hráefni og að vinna allt á staðnum. Við kaupum ekki tilbúna matvöru né berum við slíkt á borð fyrir okkar gesti. Þá er matreiðslan öll orðin nútímalegri og tekur meira mið af nýjum straumum og stefnum,“ segir Stefán Stefánsson, framkvæmdastjóri Lækjarbrekku.

Staðurinn nýtur mikilla vinsælda, gestahópurinn er afar fjölbreyttur og úrvalið af réttum er mikið með jafnmikilli áherslu á kjöt og fisk auk þess sem veganréttir koma sterkir inn.

„Hingað kemur töluvert af erlendum ferðamönnum en á bóndadaginn, til dæmis, var meirihluti gesta Íslendingar,“ segir Stefán. Það verður rómantísk stemning næstkomandi miðvikudagskvöld, á sjálfum Valentínusardeginum, þar sem mörg pör munu eiga ógleymanlega stund. Til að fá örugglega borð borgar sig að panta sem fyrst en bæði er hægt að bóka borð í síma 551-4430 eða á vefsíðunni laekjarbrekka.is.

Sérstakur fjögurra rétta matseðill verður í boði á Valentínusardeginum: Fyrsti réttur er nauta-carpaccio, síðan tekur við reykt ýsa sem hefur fengið frábærar viðtökur gesta á Lækjarbrekku; í þriðja rétt er val um þorskhnakka eða lambasteik og í eftirrétt er sérvalið súkkulaði frá Valrhona.

Sjá nánar á laekjarbrekka.is.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Kynning
18.06.2024

Madonna di Campiglio – Brekkur við allra hæfi og líflegur og skemmtilegur bær

Madonna di Campiglio – Brekkur við allra hæfi og líflegur og skemmtilegur bær
Kynning
12.06.2024

Stjarnan og Hekla skína í Garðabæ

Stjarnan og Hekla skína í Garðabæ