fbpx
Þriðjudagur 26.nóvember 2024
FókusKynning

Gæðasprautun: Framúrskarandi endurbætur á tjónabílum

Kynning
Ágúst Borgþór Sverrisson
Mánudaginn 26. febrúar 2018 12:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Gæðasprautun er fyrirtæki sem sérhæfir sig í þjónustu við eigendur tjónabíla og sér til að eigendurnir fái þá jafn góða eða betri til baka. Gæðasprautun er með samstarfssamninga við tryggingafélögin og er traustur áfangastaður fyrir þá ökumenn sem lenda í tjóni og vilja fá bílinn sinn góðan til baka.

„Ég er með marga ánægða viðskiptavini sem koma aftur og aftur en við þjónustum bílaleigurnar mikið. Stærstu bílaleigurnar leita mikið til okkar,“ segir Ricardas Navickas, eigandi fyrirtækisins, en hann er frá Litháen. Ricardas hefur búið hér á landi síðan árið 2006 og vegnað afar vel enda fagmaður fram í fingurgóma.

Um fimm manns starfa hjá Gæðasprautun við tjónaskoðun, réttingar og bílasprautun. Gæðasprautun býður upp á mjög umhverfisvænar réttingar því ef lakk er ekki skemmt í beyglunni þá geta þeir lagfært skemmdina án þess að nota lakk með því að beita svokölluðum smáréttingum. Þar með á engin litabjögun sér stað því það er sami liturinn áfram á tjónaða svæðinu og bíllinn jafn góður og áður. Þessu er náð fram með sérstakri tækni og góðum tækjabúnaði.

„Þetta geta ekki allir gert en við erum með mörg sérhæfð verkfæri til að fást við þessar beyglur og ná þessu fram,“ segir Ricardas sem viðurkennir að tjónavinnan sé mjög erfið og krefjist mikils af þeim sem við hana fást. „Við erum í þessu af ástríðu,“ segir Ricardas.

Biðtími eftir bíl sem þarf að sprauta eða lakka er oft 2–3 dagar. Ef aðeins þarf að beita smáréttingum án þess að skipta um lakk er oft hægt að vinna verkið samdægurs. Þannig sparast mikill tími og þar með er þetta afar hagstætt fyrir tryggingafélögin. Eigandi bílsins fær afnot af bílaleigubíl á meðan hann bíður eftir því að gert sé við hans bíl.

„Stundum komum við á staðinn og réttum við beyglur hjá bíleigandanum, til dæmis hjá bílaumboðum og bílaleigum og þessa þjónustu kunna menn mjög vel að meta. Við höfum oft komið á staðinn eftir að viðskiptavinur bílaleigu hefur lent í tjóni og gert við beyglur á hálftíma eða klukkutíma og allir eru alsælir, málið er leyst,“ segir Ricardas.

Gæðasprautun er til húsa að Súðarvogi 38, Reykjavík. Símanúmer er 660-9640. Sjá nánar á [Facebook-síðunni facebook.com/Gaedasprautun/].

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Kynning
27.03.2024

„Algjört saunaæði runnið yfir landsmenn“

„Algjört saunaæði runnið yfir landsmenn“
Kynning
19.03.2024

Þú færð allt fyrir ferminguna á Boozt.com

Þú færð allt fyrir ferminguna á Boozt.com
Kynning
29.10.2023

Flýgur með Íslendinga til paradísarinnar Punta Cana í myrkasta skammdeginu – „Ég skildi við kallinn en ekki landið“

Flýgur með Íslendinga til paradísarinnar Punta Cana í myrkasta skammdeginu – „Ég skildi við kallinn en ekki landið“
Kynning
27.10.2023

Jólabjór og opið til miðnættis í Nýju Vínbúðinni

Jólabjór og opið til miðnættis í Nýju Vínbúðinni