fbpx
Mánudagur 23.desember 2024
Kynning

Plast eða ekki plast?

Kynning
Jóhanna María Einarsdóttir
Þriðjudaginn 4. desember 2018 12:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Föstudaginn 16. nóvember síðastliðinn birtist grein í Morgunblaðinu með fyrirsögnina „Aðrir pokar hafa verri áhrif á umhverfið“. Í greininni er verið að  vitna „í umsögn Sorpu við til­lög­ur sam­ráðsvett­vangs um aðgerðaáætl­un í plast­mál­efn­um sem skilað var til um­hverf­is­ráðherra og birt­ur er í sam­ráðsgátt stjórn­valda.“

Í greininni er haft eftir framkvæmdastjóra Sorpu að bann við notkun burðapoka úr plasti, „sé ekki sjálf­bært í neinu til­liti, sé að lík­ind­um dýr­ara fyr­ir sam­fé­lagið, hafi nei­kvæð um­hverf­isáhrif og flæki úr­gangs­mál að óþörfu.“ Þar vísar Sorpa mikið til vistferlisgreiningar sem að danska umhverfisstofnunin lét vinna á mismundandi tegundum af burðarpokum og áhrif þeirra á umhverfið. Niðurstöður erlendra rannsókna, þar sem framkvæmdar eru t.a.m. vistferlisgreiningar, eru oft yfirfærðar sem gild fyrir Ísland. Það þarf hinsvegar að rýna í forsendur rannsóknarinnar og ganga úr skugga um hvort þær eigi við Íslenskar aðstæður. Gott dæmi er þessi danska vistferlisgreining sem nefnd er hér fyrir ofan (1).

Forsendur rannsóknarinnar sem Sorpa vitnar til, miðast við að búðarpokinn er notaður aftur og svo brenndur til orkunýtingar (kerfi EOL3 í rannsókninni, bls. 51). Orkan sem verður til er álitin vera orka sem kemur í staðin fyrir hefðbundna orku framleiðslu í Danmörku á næstu 10 árum (bls. 34). Plastpokar úr búðum á Íslandi sem notaðir eru svo undir rusl á heimilum enda með að vera urðaðir. Grunnforsendur dönsku rannsóknarinnar samræmist því engan veginn meðhöndlun úrgangs á Íslandi. Í sömu rannsókn þá er megin niðurstaðan, þegar kemur að loftslagsbreytingum, að pappa pokar eru með minnstu áhrifin, þar á eftir koma lífbrjótanlegir pokar og svo LDPE (plast) pokar (bls. 76).

Samkvæmt lögum á að minnka urðun á lífrænum úrgangi á Íslandi umtalsvert árið 2020 og sum sorpsamlög ætla að hætta því alfarið. Einnig er sett fram í nýrri aðgerðaráætlun ríkisstjórnarinnar í loftslagsmálum, liðir er snúa að því að banna urðun á lífrænum úrgangi. Þessar breytingar leiða óhjákvæmilega til þess að jarðgerð mun stóraukast á Íslandi á komandi árum. Nú þegar hafa sorpsamlögin ásamt einkafyrirtækjum í sorpgeiranum hafið undirbúning á því að bjóða upp á tæknilausnir til að standast þessar kröfur. Má þar nefna Molta hf, gas og jarðgerðarstöðina sem að Sorpa er að útbúa og landsvæði sem Íslenska Gámafélagið er að vinna í að tryggja sér til að mæta lagakröfur um aukna jarðgerð.

Vegna þessara auknu áherslu á jarðgerð lífræns úrgangs þá hentar mjög vel að skipta út hefðbundnu einnota plasti með lífbrjótanlegu plasti, þar sem slík efni eiga að fara í jarðgerð. Evrópusambandið hefur lagt mikla áherslu á að skipta út notkun á einnota plastumbúðum og hafa þeir samþykkt bann á vissum vörum árið 2021. Sambandið hefur verið að styrkja rannsóknir og fyrirtæki sem vinna að lausnum í að framleiða lífbrjótanlegt plast í takt við hringrásarhagkerfið (2). Gríðarlegur árangur hefur náðst á þessu sviði og byrjað er að framleiða megin stoðefnið í lífbrjótanlegu plasti úr afgangs afurðum frá landbúnaði og lífefnaframleiðslu (2).

Vegna þeirra lagabreytinga er varða lífrænan úrgang er erfitt að átta sig á hvernig það að banna einnota plast muni vera flóknara og dýrara fyrir samfélagið þar sem innviðirnir þurfa að breytast óháð því hvort bann á einnota plast umbúðum verður að veruleika eða ekki.

Það er staðreynd að plast er að finna í hafi, ströndum og á landi í kringum okkur með tilheyrandi mengun á lífríkinu. Örplast mengunin er orðin svo mikil að hún finnst ekki einungis í fiski, fuglum og öðrum dýrum heldur fólki líka (3). Því telur Íslenska Gámafélagið það vera skyldu okkar Íslendinga að fara að fordæmi Evrópusambandsins sem hefur samþykkt bann á vissum einnota plastumbúðum árið 2021 og enn fremur lagt til frekari bönn sem eiga að taka gildi í framhaldinu. Því styður Íslenska Gámafélagið tillögur um bann við einnota plastumbúðum líkt og lagt hefur verið til fyrir árið 2021.

[videopress IY6kP4at]

Virðingarfyllst,

Jón Þórir Frantzson

Forstjóri Íslenska Gámafélagsins

References

  1. University, Denmarks Teknik. Life Cycle assessment of grocery carrier bags. s.l. : The Danish Environmental Protection Agency, 2018. no. 1985.
  2. European Commision. BIOPLASTICS: SUSTAINABLE MATERIALS FOR BUILDING A STRONG AND CIRCULAR EUROPEAN BIOECONOMY. s.l. : https://ec.europa.eu/research/bioeconomy/pdf/cordis_rp_bioplastics_brochure_accessibility_v2.pdf, 2017. ISSN 2529-2919.
  3. UEG Week: Microplastics discovered in human stools across the globe in ‘first study of its kind’. [Online] 10 23, 2018. https://www.ueg.eu/press/releases/ueg-press-release/article/ueg-week-microplastics-discovered-in-human-stools-across-the-globe-in-first-study-of-its-kind/.

 

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Kynning
14.05.2024

Vodafone gerir tímamótasamning um internettengingar í bíla

Vodafone gerir tímamótasamning um internettengingar í bíla
Kynning
09.05.2024

UAK 10 ára – Ráðstefna á laugardaginn

UAK 10 ára – Ráðstefna á laugardaginn
Kynning
27.03.2024

Dreymir þig um lúxussiglingu um fallegustu eyjur Króatíu? – Gerðu drauminn að veruleika 

Dreymir þig um lúxussiglingu um fallegustu eyjur Króatíu? – Gerðu drauminn að veruleika 
Kynning
27.03.2024

„Algjört saunaæði runnið yfir landsmenn“

„Algjört saunaæði runnið yfir landsmenn“
Kynning
28.12.2023

Gefa bretti af flugeldum að verðmæti 243.500kr

Gefa bretti af flugeldum að verðmæti 243.500kr
KynningMatur
22.12.2023

Skúbblerone er nýr hátíðarís hjá Skúbb

Skúbblerone er nýr hátíðarís hjá Skúbb
Kynning
06.11.2023

Æfinga eða keppnisferð íþróttafélaga í útlöndum

Æfinga eða keppnisferð íþróttafélaga í útlöndum
Kynning
29.10.2023

Flýgur með Íslendinga til paradísarinnar Punta Cana í myrkasta skammdeginu – „Ég skildi við kallinn en ekki landið“

Flýgur með Íslendinga til paradísarinnar Punta Cana í myrkasta skammdeginu – „Ég skildi við kallinn en ekki landið“