Bortækni
Starfsmenn fyrirtækisins Bortækni leysa fagmannlega af hendi öll verkefni, stór sem smá, á fljótlegan og skilvirkan hátt. „Við höfum rúmlega 36 ára reynslu sem er dýrmæt og nýtist viðskiptavinum okkar vel. Strax í upphafi var sérstök áhersla lögð á fagleg vinnubrögð og þrifalega umgengni,“ segir Halldór Kristjánsson verkstjóri.
Halldór segir að Bortækni annist margvísleg verkefni, eins og til dæmis kjarnaborun og steypusögun auk þess sem fyrirtækið sérhæfir sig í niðurrifi. „Bortækni hefur á hátt í fjögurra áratuga ferli ávallt lagt mikla áherslu á að veita viðskiptavinum sínum góða og persónulega þjónustu. Með nýjustu og bestu fáanlegum tækjum er okkur kleift að bjóða hraða þjónustu á sanngjörnu verði,“ segir hann.
„Bortækni hefur verið leiðandi í íslenskum verktakaiðnaði í gegnum tíðina og ekkert verk er of stórt eða of smátt fyrir okkur. Í dag erum við með með 10–12 starfsmenn sem eru allir búnir að vera lengi i faginu. Okkur er mjög umhugað um vinnuöryggi og heilsu okkar starfsmanna. Bortækni vinnur mikið í heimahúsum við að saga glugga, hurðarop og stiga. Fyrirtækið tekur einnig að sér að saga fyrir hita í gólf og sér um að rífa allt, eins og innréttingar, veggi og gólfefni. Við komum á staðinn og gerum verðtilboð þér að kostnaðarlausu,“ segir Halldór að lokum.
Bortækni ehf., Miðhrauni 14, 210 Garðabær
Símar: 567-7570, 693-7700
Netfang: bortaekni@bortaekni.is
www.bortaekni.is