Faktoría fjármagnar ógreiddar kröfur
Faktoría er nýtt fjármálatæknifyrirtæki (e. fintech) sem býður fyrirtækjum að fjármagna kröfur þeirra. Fjárflæði fyrirtækja getur verið mjög sveiflukennt en kostnaðurinn fer aldrei í frí, það þarf að greiða laun og launatengd gjöld um hver mánaðamót auk fjölmargra annarra fastra kostnaðarliða, á meðan útistandandi kröfur falla ekki á gjalddaga fyrr en eftir mánuð eða mánuði. Þessar kröfur eru hins vegar fjármagnaðar strax hjá Faktoríu, biðin eftir peningunum getur farið alveg niður í eina klukkustund.
„Við erum að bjóða nýja tegund af fjármögnun fyrir fyrirtæki sem er nokkuð til hliðar við allt skrifræðið og biðina sem fylgir hefðbundinni lánafyrirgreiðslu,“ segir Hörður Bender, stofnandi og eigandi Faktoría, en auk hans starfa við fyrirtækið þeir Finnur Freyr Gunnarsson og Haukur Baldvinsson og saman mynda þeir þriggja manna samhent teymi.
Hin skilvirka og hraða þjónusta Faktoríu hvílir á afar velvirkum hugbúnaði sem þróaður var í nokkur ár og prófaður með örfáum viðskiptavinum áður en starfsemin hófst formlega fyrir rétt rúmu ári: „Við erum hluti af hinni svokölluðu Fintech. bylgju, þ.e. Financial Technology, en hjá Seðlabanka Íslands og á Alþingi hefur verið kallað eftir meiri flóru í fjármálageiranum. Við erum klárlega að svara því kalli,“ segir Hörður.
Það er fleira sem gerir kröfufjármögnun þægilegri en hefðbundna fjármögnun: Það þarf engin veð. Það þarf bara gilda kröfu, Faktoría gengur úr skugga um að reikningurinn sé réttur og þar með er forsendan fyrir fyrirgreiðslu komin.
Að sjálfsögðu innheimtast ekki allar kröfur og því er áhætta í spilunum sem Faktoría tekur á sig, en föst innheimtuþóknun er 2,5% af kröfunni. Það þýðir til dæmis 25.000 krónur af 1 milljón, sem fyrir marga er lítið í samanburði við það óhagræði sem hlýst af því að bíða eftir að viðskiptavinir greiði kröfur eða fá hefðbundna lánafyrirgreiðslu hjá banka.
Að sögn Harðar er markhópur Faktoríu lítil og meðalstór fyrirtæki eða nánar tiltekið fyrirtæki með 5 til 100 starfsmenn: „Stærsti geirinn hjá okkur er byggingariðnaðurinn og síðan eru það sjávarútvegurinn og ferðaþjónustan. Ferðaþjónustan er gott dæmi um starfsemi þar sem fjárflæði er ójafnt. Það er oft gott yfir sumarið en síðan er mun erfiðara að reka fyrirtækin yfir vetrartímann. Þá er gott að hafa þessa fyrirgreiðslu sem jafnar út sveiflurnar. Núna eru sérverslanir töluvert að leita til okkar, sem vantar fjármagn til að byggja sig upp fyrir jólin, þurfa að fylla á lagerinn og það er þungt að leggja út fyrir slíku þó að það eigi eftir að skila sér allt til baka í jólasölunni,“ segir Hörður.
Sem fyrr segir hefur Faktoría aðeins verið í rúmt ár á markaðnum eftir langan aðdraganda þar sem menn huguðu vandlega að því að treysta tæknilegan grunn starfseminnar. Hörður segir að viðtökurnar hafi verið frábærar og þjónustan er greinilega kærkomin fyrir mörg lítil og meðalstór fyrirtæki
.
Þeir sem hafa áhuga á að kynna sér þjónustuna betur og hafa ef til vill þörf fyrir fjármögnun af þessu tagi ættu endilega að skoða vel vef fyrirtækisins, faktoria.is. Þar eru greinargóðar og aðgengilegar upplýsingar auk þjónustuvefjar þar sem viðskiptavinir taka nokkur skref að fjármögnuninni í einföldu og traustu ferli.
Á vefnum er einnig að finna símanúmer þeirra Harðar, Finns og Hauks og er velkomið að hringja í þá og fá nánari upplýsingar og útskýringar á þjónustunni í símtali.