fbpx
Fimmtudagur 26.desember 2024
FókusKynning

Skíðalandsliðið notar EVY-sólarvörn á Vetrarólympíuleikunum

Kynning

Veitir allt að sex tíma vörn gegn skaðlegum geislum

Ágúst Borgþór Sverrisson
Laugardaginn 27. janúar 2018 18:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Þau tíðindi hafa orðið að allir keppendur í A- og B-landsliðum Íslands í skíðaíþróttum munu hér eftir nota hina byltingarkenndu EVY-sólarvörn við æfingar og keppni. A-landsliðið tekur þátt í Vetrarólympíuleikunum í Suður-Kóreu sem hefjast í febrúar.

Sturla Snær Snorrason keppir á Vetrarólympíuleikunum
Sturla Snær Snorrason keppir á Vetrarólympíuleikunum

„Við erum afar ánægð með þetta frumkvæði og þessa faglegu sýn hjá Skíðasambandi Íslands,“ segir Anna Björg Hjartardóttir, framkvæmdastjóri Celsus, sem selur EVY á Íslandi. „Við erum ánægð með að Skíðasambandið skuli átta sig á þessum mikilvægu gæðum vörunnar nú á þeim tímum þegar útbreiðsla húðkrabbameins er orðin svo mikil og há UVA-vörn er afar mikilvæg þeim sem eru lengi í sól því alvarleg skaðsemi útfjólubláu A-geislanna gerir engan greinarmun á hitastigi, það gildir einu hvort þú ert að erfiða í snjó og kulda eða að stikna á ströndinni.“

Mikilvægt að hafa í huga: Hægt að skaðast af sólinni án þess að brenna

EVY inniheldur bæði háa vörn gegn UVA- og UVB-geislum. Þeir síðarnefndu valda sólbruna og bendir Anna á að það geri þá augljósari þar sem fólk verði vart við að það hafi sólbrunnið, þó ekki í golu og vindi og oftast of seint. „UVA-geislar berast til dæmis inn um gluggarúður og afleiðingin er meðal annars sú að húðkrabbamein hjá flugmönnum hefur aukist mikið,“ segir Anna. Snjór endurkastar allt að 85% af sólargeislunum, þess vegna er oft margt brennt skíðafólk á sólardögum.

EVY byggir á einkaleyfisskráðri formúlu. Grunnformúlan myndar rakafyllta verndandi vörn sem líkir eftir og styrkir náttúrulegar varnir húðarinnar og bindur raka í húðinni jafnvel við erfiðustu aðstæður, uppi á jöklum, í frosti, í söltum sjó sem dæmi. Vörnin leggst í hornlag húðarinnar í stað þess að leggjast á yfirborðið eins og algengast er. Þess vegna nuddast vörnin ekki af og þolir sund, sjó, leik og íþróttir, enginn glans eða klístur. Rannsóknir sýna allt að 6 tíma vörn gegn UVA- og UVB-geislum. EVY verndar líka gegn hita, vindi og þurrk af klór, saltvatni og húðertandi áreiti.

Notkun EVY breiðist nú út á meðal skíðamanna, ræðara, pólfara og annarra ofurhuga sem reyna á mátt sinn úti í náttúrunni. Hins vegar er æskilegt að allt útivistarfólk noti EVY til að vernda sig gegn skaðlegum geislum, til dæmis fjallgöngufólk og áhugaskíðamenn í skíðaferðalögum.

Ítarlegar og afar gagnlegar upplýsingar er að finna um EVY sólarvörnina á vefsíðunni evy.is.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Kynning
14.05.2024

Vodafone gerir tímamótasamning um internettengingar í bíla

Vodafone gerir tímamótasamning um internettengingar í bíla
Kynning
09.05.2024

UAK 10 ára – Ráðstefna á laugardaginn

UAK 10 ára – Ráðstefna á laugardaginn
Kynning
27.03.2024

Dreymir þig um lúxussiglingu um fallegustu eyjur Króatíu? – Gerðu drauminn að veruleika 

Dreymir þig um lúxussiglingu um fallegustu eyjur Króatíu? – Gerðu drauminn að veruleika 
Kynning
27.03.2024

„Algjört saunaæði runnið yfir landsmenn“

„Algjört saunaæði runnið yfir landsmenn“
Kynning
28.12.2023

Gefa bretti af flugeldum að verðmæti 243.500kr

Gefa bretti af flugeldum að verðmæti 243.500kr
KynningMatur
22.12.2023

Skúbblerone er nýr hátíðarís hjá Skúbb

Skúbblerone er nýr hátíðarís hjá Skúbb
Kynning
06.11.2023

Æfinga eða keppnisferð íþróttafélaga í útlöndum

Æfinga eða keppnisferð íþróttafélaga í útlöndum
Kynning
29.10.2023

Flýgur með Íslendinga til paradísarinnar Punta Cana í myrkasta skammdeginu – „Ég skildi við kallinn en ekki landið“

Flýgur með Íslendinga til paradísarinnar Punta Cana í myrkasta skammdeginu – „Ég skildi við kallinn en ekki landið“