„Þetta súkkulaði er ekki eitthvað sem þú kaupir þegar þig langar í nammi úti í sjoppu, heldur meira þegar þú vilt gera virkilega vel við þig eða færa einhverjum sælkeragjöf,“ segir Finnur Bjarki Tryggvason en hann rekur súkkulaðigerðina Suður Súkkulaði ásamt eiginkonu sinni, Magneu Þóreyju Hilmarsdóttur. Þau framleiða sex tegundir úr hágæða hráefni frá belgísk/frönskum framleiðanda og einnig er konfektframleiðsla í pípunum.
„Við kaupum hráefni sem er unnið úr kakóbaunum. Þetta er því hrein og góð afurð. Það er ákveðið hollustugildi í svona konfektsúkkulaði, unnið úr kakómassa og kakósmjöri. Það er töluverð upplifun og mettun í hverjum mola, er mér óhætt að segja.“
Fjórar af tegundum sex sem Suður Súkkulaði framleiðir eru hreint súkkulaði, misjafnlega dökkt, en í tvær er blandað döðlum og heslihnetum annars vegar og hins vegar pekanhnetum og kirsuberjakrispi. „Ein af tegundunum okkar er lífrænt, dökkt súkkulaði og í því eru þrjú innihaldsefni, lífrænn hrásykur, lífrænn kakómassi og lífrænt kakósmjör. Ég held að við höfum veðjað á rétt með því að fara út í þetta lífræna því þeir sem eru fyrir dökkt súkkulaði vilja gjarnan fara alla leið.“
Aðspurður segir Finnur að vissulega sé töluverður sykur í vörunni en þó minna en margir haldi. „Við erum með 71% hreint súkkulaði en mörgum finnst það silkimjúkt og bragðast meira eins og 55–60% hreint súkkulaði.“ Suður Súkkulaði er með lögheimili á Hvolsvelli en starfsstöð að Goðalandi í Fljótshlíð. „Við höfum verið mest á Suðurlandinu en erum að teygja okkur víðar um landið, til Reykjavíkur, í Borgarfjörð, á Suðurnes og austur á við og það var nokkuð stórt skref að fara í flugstöðina,“ segir Finnur en Suður Súkkulaði kom fyrst með vöru á markað í júní 2017.
Fyrirtækið stækkar hægt og rólega en bæði Íslendingar og erlendir ferðamenn kunna vel að meta þetta handgerða gæðasúkkulaði þar sem sú hollusta sem gott súkkulaði býr yfir fær að njóta sín ásamt ljúffengu bragði.