Reiðskóli Reykjavíkur hefur verið starfandi frá árinu 2001. Eigendur skólans eru hjónin Edda Rún Ragnarsdóttir og Sigurður Vignir Matthíasson. Þau hafa stundað hestamennsku frá blautu barnsbeini, fyrst sem áhugamál og síðan sem aðalatvinnu.
Samhliða starfsemi Reiðskóla Reykjavíkur reka hjónin hestamiðstöðina Ganghestar, þar sem þau bjóða upp á þjónustu við hestafólk, t.d. kaup og sölu á hrossum, reiðkennslu, frumtamningar og þjálfun á kynbóta- og keppnishrossum.
Edda Rún og Sigurður halda fjölmörg reiðnámskeið um allan heim og fara reglulega til Noregs, Hollands, Svíþjóðar, Belgíu og Þýskalands.
Reiðskóli Reykjavíkur er með aðsetur að Fákabóli 3, 110 Reykjavík, sem er staðsett fyrir framan Félagsheimili Fáks í Víðidal.
Mynda náin tengsl við hestinn
Reiðnámskeið Reiðskóla Reykjavíkur hefjast á vorin þegar skóla lýkur og eru frábær tilbreyting frá skólanáminu enda fátt hollara börnum en að kynnast þeim gáfuðu dýrum sem hestar eru, njóta útiveru í góðum félagsskap og rækta með sér það frábæra áhugamál sem hestamennskan er.
Námskeiðin eru fyrir aldurshópinn 6 til 15 ára. Hver nemandi er með sama hestinn út námskeiðið – nema ef samið er um annað. Með þessu móti myndar barnið náin tengsl við dýrið. Nemendur sem eiga eigin hesta geta tekið þá með sér á námskeiðið ef þeir kjósa svo.
Kennslan í reiðskólanum skiptist í verklega og bóklega kennslu en er mest byggð upp á verklega þættinum þannig að nemandinn öðlist leikni og hæfni í að sitja og stjórna hestinum. Einnig kynnast nemendur helstu gangtegundum hestsins, læra undirstöðuatriði í umhirðu hestsins og hvernig á að leggja á bak og beisla hest.
Í lok reiðnámskeiðsins er sýning hjá þeim sem eru í tveimur fyrstu hópunum og er foreldrum og forráðamönnum boðið að koma og sjá hvað barnið hefur lært á námskeiðinu. Jafnframt fær hver nemandi afhent viðurkenningarskjal með mynd af sér á hestinum sínum. Hvert námskeið endar síðan á grillveislu.
Ítarlegar upplýsingar er að finna um námskeiðin á vefsíðunni reidskoli.is og þar er jafnframt hægt að bóka námskeið.