„Endurnærandi fyrir líkama og sál nútímamannsins“
Fyrirtækið Sauna.is hefur frá upphafi sérhæft sig í uppsetningu, sölu og þjónustu á TYLÖ sauna- og gufuklefum. Starfsemi fyrirtækisins hefur snúist um að þjónusta sundlaugar, líkamsræktarstöðvar, hótel, gistihús og heimili.
Páll S. Kristjánsson framkvæmdastjóri segir að TYLÖ saunavörurnar séu leiðandi vörumerki í saunaheiminum í dag og hann hefur þjónað Íslendingum í yfir 40 ár.
„Mikil reynsla og sérþekking er meðal starfsmanna fyrirtækisins, enda hefur Sauna.is unnið að uppsetningu og þjónustu sauna- og gufuklefa í öllum helstu hótelum, sundlaugum og íþróttamiðstöðvum ásamt heimilum,“ segir Páll. „Sauna.is er því alhliða þjónustufyrirtæki sem selur, setur upp og veitir lausnir á þessu sviði. Við bjóðum viðskiptavinum okkar einnig þjónustu við ráðgjöf og eftirlit með sauna- og gufuböðum.“
Finnar hamingjusamir vegna saunanotkunar
„Regluleg notkun gufubaða er talin mjög heilsusamleg,“ segir Páll. „Þau hafa bæði almennt góð áhrif á blóðrásina og auka vellíðunarkennd vegna streitulosandi áhrifa. Margar rannsóknir hafa sýnt fram á samhengi á milli mikillar streitu og aukinnar tíðni kransæðasjúkdóma. Góð stund í sauna- eða gufuklefa getur reynst endurnærandi fyrir líkama og sál nútímamannsins, þar sem hann nýtur kyrrðar og slökunar til hins ítrasta,“ segir Páll.
Nútímalegar lausnir
Sauna.is selur allar gerðir af saunaklefum, það er blautgufu, mildgufu, þurrgufu, saunatunnur, infra-klefa og potta. Að auki eru á boðstólum ýmsar gerðir ilmolía, fylgi- og aukahlutir og vefnaðarvörur. Páll hvetur fólk til þess að kynna sér vöruúrvalið á heimasíðu Sauna.is eða líta við í heimsókn í verslunina á Smiðjuvegi 11.
Sauna.is/Tækjatækni ehf.
Smiðjuvegi 11
200 Kópavogur
Símar: 571-3770 og 860-4460
Netfang: www.sauna@sauna.is
Heimasíða:www.sauna.is