Gott kynlíf er lykilatriði þegar góð og kærleiksrík ástarsambönd eru annars vegar. Það hversu oft pör stunda kynlíf getur sagt eitthvað um það hversu hamingjurík samböndin eru – þó það segi ekki alla söguna.
Nýlega birtust niðurstöður rannsóknar í tímaritinu The Society of Personality and Social Psychology, en viðfangsefni rannsóknarinnar var einmitt að skoða kynlíf og sambönd.
Samkvæmt niðurstöðum rannsóknarinnar er eitt skipti í viku nóg til að halda pörum fullnægðum, ef svo má að orði komast. 30 þúsund pör, vítt og breitt um Bandaríkin, tóku þátt í rannsókninni yfir margra ára tímabil.
Amy Muise, einn þeirra vísindamanna sem stóð fyrir rannsókninni, segir að það sé útbreidd skoðun að eftir því sem pör stunda kynlíf oftar, þeim mun hamingjusamari séu þau.
En samkvæmt þessari rannsókn var ekki marktækur munur á hamingju para eftir því hvort þau stunduðu kynlíf einu sinni í viku að jafnaði eða oftar.
„Niðurstöðurnar benda til þess að það sé mikilvægt að viðhalda nánu sambandi við makann, en óþarfi að stunda kynlíf hvern einasta dag svo lengi sem fólk viðheldur neistanum,“ segir hún. Rannsóknin stóð yfir langt tímabil, eða frá árunum 1988 til 2012.
Fleiri þættir voru skoðaðir í rannsókninni og niðurstöðurnar skoðaðar í víðara samhengi, til dæmis eftir kynjum, aldri og fjárhag. Niðurstöðurnar benda til þess að karlar séu ekki þyrstari í kynlíf en konur og þá finnst þeim sem eldri eru alveg jafn mikilvægt að stunda kynlíf og þeim sem yngri eru.