Grænmeti frá Lambhaga er einstaklega hrein vara
Flestir þekkja grænmetið frá Lambhaga, margar tegundir af brakandi fersku salati, sem og kryddjurtirnar, enda algeng sjón í matvöruverslunum og á matarborðum landsmanna. Sífellt aukin áhersla á vistvæna framleiðslu veldur stöðugt aukinni eftirspurn eftir vörum Lambhaga og hefur fyrirtækið stækkað mikið á undanförnum árum. „Við höfum náð mikilli hagræðingu og framlegð og höfum ekki þurft að hækka verð síðan árið 2011. Ég þekki ekkert annað fyrirtæki á Íslandi sem hefur verið með sama framleiðsluverð í sex ár en gengur enn vel,“ segir Hafberg Þórisson, eigandi Lambhaga. Hann stofnaði fyrirtækið árið 1979 en meðeigandi í dag er bróðir hans, Ásmundur Þórisson.
Frá árinu 2011 hefur Lambhagi stækkað fimmfalt en jafnframt er lögð sífellt þyngri áhersla á hreinleika og vistvæna framleiðslu
„Húsakosturinn er kominn upp í 15.000 fermetra úr 2.900 fermetrum. Við erum komin með betri ræktunaraðferðir sem við erum búin að tileinka okkur. Við höfum jafnframt náð því takmarki að verða eins umhverfisvæn og hægt er að vera. Við erum með lokað rými þannig að flugur og fuglar komast ekki inn. Hreinlæti er mikið og við erum með hringrásarkerfi sem hreinsar allt vatn sem við látum frá okkur og við endurnýtum það. Þá erum við búin að taka í notkun stóra pottavél þar sem pottarnir eru búnir til úr þar til gerðum pappír en áður var notast við plastpotta. Pappírinn eyðist á 45 dögum. Sem merki um afköstin notum við um átta milljón potta á ári,“ segir Hafberg.
Hafberg bendir á að neytendur kalli eftir hreinna grænmeti en því sem er innflutt:
„Innflutta varan er alltaf úðuð með eiturefnum, líka sú sem sögð er vera lífræn, það eru viss efni sem má nota og þau eru notuð. Við notum hins vegar engin slík efni í okkar afurðir, við notum einfaldlega bara vatn og hreinlæti við okkar framleiðslu,“ segir Hafberg.
Gróðrarstöð Lambhaga er að Lambhagavegi 23, 113 Reykjavík, en stendur á jörðinni Lambhaga sem hefur verið bújörð frá því í kringum árið 1200 og er enn lögbýli í dag.
Heimasíða fyrirtækisins er www.lambhagi.is og Lambhagi er einnig á Facebook.