Spennandi möguleikar opnuðust á dögunum hjá CenterHotel Miðgarði, sem staðsett er ofarlega á Laugaveginum, þegar byggt var við hótelið. Með tilkomu nýbyggingarinnar sem tekin var í notkun í sumar stækkaði hótelið til muna og ýmiss konar þjónustuþættir bættust þá við, þar á meðal myndaðist mjög heppileg aðstaða til veislu- og fundarhalda.
„Salirnir hjá okkur á Miðgarði eru búnir að vera í mikilli notkun alveg síðan við opnuðum og mikil ánægja hefur verið með aðstöðuna, til dæmis með lýsinguna og hljóðvistina,“ segir Melissa Munguia, hótelstjóri á CenterHotel Miðgarði.
„Þessi nýja viðbót við hótelið breytir mjög miklu og bjóðum við nú upp á 170 herbergi á hótelinu, rúmgott móttökusvæði, bar, spa og afgirtan garð sem gestir geta notið. Salirnir eru tveir talsins en hægt er að opna á milli þeirra og myndast þá einn rúmgóður salur sem getur tekið á móti 70 manns, allt eftir uppsetningunni á þeim.“
Á CenterHotel Miðgarði er veitingastaðurinn Jörgensen Kitchen & Bar og sér eldhúsið á Jörgensen um alla veisluþjónustu sem snýr að veitingum sem bornar eru fram í sölunum, hvort sem um er að ræða smærri hádegisfundi sem haldnir eru í fundarsölunum eða stærri veislur sem haldnar eru í veitingastaðarýminu. Veitingastaðarýmið hefur einmitt töluvert verið nýtt fyrir stórafmæli, útskriftir og fermingar, svo fátt eitt sé nefnt.
Mikil eftirspurn hefur verið í að halda hádegisfundi með veitingum á Miðgarði allt frá opnun, og hafa fyrirtæki í grennd við hótelið verið ötul við að halda slíka fundi þar. Einkar hentugt þykir að geta verið í lokuðu vinnurými og geta notið matar á sama tíma.
„Í hádeginu bjóðum við upp á hádegishlaðborð þar sem finna má kjötrétti, fiskrétti, súpu og bakkelsi. Nóg er af bílastæðum í grennd við hótelið og hefur þessi kostur því verið mjög vinsæll meðal starfsfólks fyrirtækja,“ segir Melissa.
Sem fyrr segir kemur maturinn úr eldhúsi hins rómaða veitingastaðar Jörgensen Kitchen & Bar sem opnaður var í mars 2016 og hefur getið sér mjög gott orð.
„Við bjóðum upp á ákveðna matseðla fyrir fundinn eða veisluna, allt frá smáréttahlaðborði og pinnamat upp í mat sem þjónar bera á borð fyrir gesti, en þriggja rétta hópmatseðlar frá Jörgensen henta mjög vel fyrir slíkar veislur. Ef matseðlarnir henta ekki fyrir viðkomandi veislu er sest niður með viðskiptavininum og farin leið sem honum hentar betur. Þannig er bæði í boði að ganga að einhverju tilbúnu eða að móta veisluna eftir eigin höfði, allt eftir óskum hvers og eins,“ segir Melissa og bætir við: „Um daginn hýstum við til dæmis spilamót hérna sem heppnaðist mjög vel, þannig að fjölbreytnin er mikil.
Þar sem salirnir eru á hótelinu opnar það einnig á þann möguleika að gestir geti nýtt sér þá aðstöðu og notið veislunnar eða fundarins og gist síðan á hótelinu. Sá kostur hefur hentað mjög vel fyrir erlenda gesti sem og veislugesti utan af landi,“ segir Melissa.
Til að fá frekari upplýsingar um veisluþjónustuna á Miðgarði eða til að panta sal er best að senda tölvupóst á netfangið fv@centerhotels.com eða hringja í 595-8589.