Chuck Norris Grill, ekki bara fyrir þá allra hörðustu
Sagt er að hann felli ekki tár við að skera lauk, heldur sé það laukurinn sem væli. Einnig ganga sögur um að hann hafi eitt sinn verið bitinn af baneitruðum snák, sem lést síðan sjálfur af völdum eitrunar eftir að hafa engst um í fjóra klukkutíma. Þeir eru margir naglarnir í Hollywood en Chuck Norris er án efa sá harðasti af þeim öllum. Það er líka sagt að hamborgararnir frá Chuck Norris Grill séu þeir bestu í bænum, en þar er um að ræða lítinn en kröftugan veitingastað í miðbænum, sem selur frábæra borgara, samlokur, steikur og salöt á heiðarlegu verði.
„Kjötið sem við notum er alltaf fyrsta flokks. Einnig látum við sérbaka fyrir okkur brauð fyrir borgarana og samlokurnar. Það sem gerir hamborgarana okkar sérstaka er sultaði laukurinn sem við sultum samviskusamlega á hverjum morgni. Hann gefur smá kikk á meðan chili-majónesið okkar gefur léttan kinnhest til að vekja bragðlaukana. Sultaði laukurinn vinnur sérlega vel á móti chili-majónesinu og gefur gott jafnvægi í bragði og styrkleika. Úr verður banvæn blanda sem gerir borgarann epískan eins og Chuck Norris sjálfan,“ segir Jón Bjarni, eigandi Chuck Norris Grill.
Þeir sem vilja færa matinn sinn upp á næsta stig geta tekið hring á sósubarnum víðfræga sem Chuck Norris Grill býður gestum sínum upp á. „Þetta er opinn bar með 20–30 gerðum af sósum sem eru tilvaldar til þess að „spæsa“ upp matinn. Við erum með spicy sriracha-sósu, Bbq-sósu, hot sauce og margt fleira. Við látum það ekki fréttast að einhver hafi fengið bragðlausan borgara á Chuck Norris Grill,“ segir Jón Bjarni.
Fyrir eiturharða nagla eins og Chuck Norris sjálfan, þá mælir Jón Bjarni sérstaklega með tvöfaldum Wabamm með bræddum óðalsosti, sultuðum lauk, tómat, fersku salati og chili-majónesi. Honum fylgja franskar og var hann sérstaklega hannaður með snillinginn Chuck Norris í huga. En Chuck Norris Grill er ekki bara fyrir eiturharða nagla sem kalla ekki einu sinni ömmu sína ömmu sína. Þessi rómaði veitingastaður er fyrir alla sem hafa smekk fyrir bragðgóðum og vel gerðum mat. Skammtarnir eru rausnarlegir og verðið kemur skemmtilega á óvart. Þannig er Chuck Norris-andinn kraftmikill, heiðarlegur, bragðmikill, hreinn og beinn því á Chuck Norris Grill færðu einfaldlega góðan mat á góðu verði. Vilji menn gera sérstaklega vel við sig þá er líka hægt að fá sér sæti á Dillon Whisky bar á efri hæðinni og panta matinn þangað upp og súpa á einhverri þeirra 180 tegunda af whisky sem boðið er upp á þar.
Chuck Norris Grill er staðsettur við miðjan Laugaveg, 101 Reykjavík.
Opið alla daga frá 11.00–01.00 nema sunnudaga, þá er opið til miðnættis.
Sími: 561-3333
Email: chucknorrisgrill@gmail.com
Nánari upplýsingar má nálgast á Facebook-síðunni Chuck Norris Grill.