Harðviðarval, Krókhálsi 4, Reykjavík
Vegna tækniþróunar síðustu ára og með samstarfi við framleiðendur sem eru fremstir á sínu sviði getur verslunin Harðviðarval boðið upp á vínylparkett og vínylflísar sem líkir eftir bestu verkum náttúrunnar.
Mikill vöxtur hefur verið í sölu á þessari tegund gólfefna síðastliðin ár, þar sem mörg af helstu hótelum landsins og ýmis önnur fyrirtæki hafa séð kosti þess umfram önnur gólfefni. Þeir kostir sem heilla við þetta frábæra gólfefni eru mikið högg- og slitþol auk þess sem það dempar fótatak. Einnig er efnið mjög vatnshelt þannig að það má setja á baðherbergi, forstofu og eldhús án þess að hafa teljandi áhyggjur.
Sem dæmi um staði sem hafa lagt hjá sér vínylefni frá Harðviðarvali eru Würth í Norðlingaholti, Joe and the Juice, Laugavegi og Lágmúla, Skuggi hótel, Íslandsbanki Norðurturn, Domino’s á Selfossi, Tokyo Sushi í Glæsibæ og svo mætti lengi telja. Gífurleg reynsla er því komin á vínylparkett og vínylflísar á svæðum þar sem þarf að vanda valið og velja öflugt og endingargott gólfefni vegna mikils ágangs.
Þetta frábæra gólfefni er samt ekki bara hentug lausn fyrir fyrirtæki í almannarými heldur nýta sífellt fleiri það á heimilum sínum. Sala vegna íbúðarhúsnæðis hefur aukist mjög mikið. Sá misskilningur er nokkuð útbreiddur að vínylefni séu nýjung á markaðnum sem verið sé að prófa sig áfram með en staðreyndin er sú að komin er góð reynsla á þetta efni, bæði hér og í öðrum löndum.
„Við erum með eitthvert mesta úrval landsins af hágæða vínylparketti og vínylflísum. Við höfum valið að versla við framleiðendur sem framleiða öll sín efni í Evrópu, í fullkomnum verksmiðjum þar sem gerðar eru miklar gæðakröfur. Framleiðendur sem við kaupum af eru Quick-Step í Belgíu, sem er þekktur fyrir sitt hágæða harðparkett, DLW frá Þýskalandi og Gerflor frá Frakklandi. Úrvalið er mikið og bjóðum við upp á yfir 20 tegundir á lager og aðra 85 liti til sýnis í sýningarsal okkar að Krókhálsi 4. Við hvetjum fólk til að skoða þetta framúrskarandi gólfefni og eru sölusérfræðingar okkar meira en tilbúnir að gefa góð ráð um val á efni og fleira. Harðviðarval hefur, allt frá stofnun árið 1978, sérhæft sig í þjónustu við arkitekta, fyrirtæki og stofnanir með sölu á línóleum-dúkum, teppum, teppaflísum, parketti og hurðum ásamt gólf- og veggflísum,“ segir Einar Andri Einarsson rekstrarstjóri hjá Harðviðarvali.
Fyrirtækið er til húsa að Krókhálsi 4, Reykjavík. Sjá nánar vefsíðuna www.parket.is. Sími er 567-1010. Opið er virka daga frá kl. 9–18 og laugardaga 11–15.