Drífa Björk Linnet Kristjánsdóttir bauð á hársýningu:
Reykjavík Warehouse og Eleven Australia héldu nýlega hársýningu í Gamla bíói þar sem sýnt var allt það nýjasta sem er að gerast í hártískunni í klippingu, litum og greiðslum, fyrir konur og karla.
„Þetta er í fyrsta skipti sem við höldum sýningu af þessu tagi,“ segir Drífa Björk, sem er eigandi Reykjavík Warehouse, sem flytur inn áströlsku hárvörurnar frá Eleven. „Viðbrögð gesta eftir sýninguna eru þau að gestum fannst við hafa tekið hlutina upp á nýtt „level“.
„Við erum með öflugt og gott teymi sem heitir Reykjavík Warehouse Education Team og í því er samansafn af góðu fagfólki, fagfólki sem okkur finnst skera sig úr og við bjóðum þeim að vera með í teyminu,“ segir Drífa. „Við sendum síðan fulltrúa okkar, einn eða fleiri, út á land til að standa að vinnusmiðju og höldum hana þá fyrir nokkrar hárgreiðslustofur í einu. Við höfum þá jafnvel hvatt stofurnar til að vera með „erfið“ módel, einstaklinga sem eiga við einhver hárvandamál að etja eða þurfa á góðri meðferð að halda. Við höfum orðið vör við að margt fagfólk í greininni er ekki nógu duglegt að endurmennta sig og jafnvel fast í einhverri tækni og erum því dugleg að sinna landsbyggðinni og höldum námskeið reglulega þar sem fulltrúi frá okkur kynnir háraliti, merki og kennir nýjustu tækni og klippingar. Einnig höfum við sent fulltrúa til útlanda á námskeið eða í vinnusmiðjur og síðan kemur hann heim og heldur námskeið og miðlar til okkar hinna. Að auki höfum við fengið erlenda gesti hingað til lands til að halda námskeið fyrir okkur.“
Alls komu 11 gestir frá Ástralíu til að vera viðstaddir sýninguna og meðal þeirra voru heiðursgestirnir Joey Scandizzo og Andrew O’Tool stofnendur og eigendur Eleven Australia. Reykjavík Warehouse var fyrsti heildsalinn fyrir utan Ástralíu til að taka vörurnar í sölu og hafa þær verið til sölu hér á landi í tvö ár. „Þetta var stór og mikil sýning, 30 manns sem komu að henni og 30 módel, auk erlendu gestanna sem komu. Við stefnum á að hafa svona hársýningu árlega, en til að hún virki vel og skili árangri, þá verður fagfólk að mæta,“ segir Drífa.
Það var í nóvember 2011 sem fyrsta varan frá Eleven, Miracle Hair Treatment, kom á markað í Ástralíu, í henni er allt sem hárið þarf í einum brúsa: sólar-, hita- og rakavörn, þannig að hún er eins og „primer“ fyrir hárið. Síðan þá hefur merkið og vöruúrvalið stækkað hratt og fást vörurnar nú um allan heim og er merkið það hárvörumerki sem vex hraðast í heiminum. „Það er hvergi eins strangt gæðaeftirlit og í Ástralíu og Joey og Andrew eru báðir mjög virtir og þekktir,“ segir Drífa. „Einhvern tímann áttu þeir félagar spjall saman og Joey, sem rekur margar hárgreiðslustofur og er með 130 fagmenn í vinnu, sagðist vera orðinn leiður á því hvað merki væru flókin og of mikill tími færi í að útskýra fyrir viðskiptavininum hvernig varan virkar og kenna fagfólkinu að umgangast vöruna og nota.“ Þeir voru sammála um að á markaðinn vantaði vöru sem væri, einföld gæðavara, á góðu verði og sem virkaði. Þannig varð Eleven til. Og er varan þróuð og prófuð af fagfólki áður en hún fer á markað.