Lítið Mál ehf.
Lítið Mál ehf. er lítið málningar- og viðhaldsþjónustufyrirtæki í eigu Sigurðar H. Engilbertssonar, sem starfar á höfuðborgarsvæðinu. Fyrirtækið leggur áherslu á toppþjónustu og fagleg vinnubrögð sem uppfylla þarfir viðskiptavina. Til að tryggja góða endingu eru eingöngu notuð gæðaefni og þá helst íslensk framleiðsla, en einnig erlend ef svo ber undir.
Lítið Mál ehf. sinnir jafnt litlum breytingum sem stórum viðhaldsverkefnum. Fyrirtækið býður upp á alla almenna málningarþjónustu og gerir alhliða tilboð vegna viðhalds og endurnýjunar jafnt utanhúss sem innan. Þannig veitir Lítið Mál ehf. fullkomna þjónustu varðandi viðhald eigna, sinnir endurmálun íbúða, lökkun glugga, niðurrifi og uppsetningu eldhúsinnréttinga
Í málningarvinnu og viðhaldsvinnu býr Lítið Mál að áratuga reynslu Sigurðar H. Engilbertssonar framkvæmdastjóra og löngu samstarfi hans við aðra verktaka og birgja. Fyrirtækið hefur skapað sér sérstöðu fyrir vönduð vinnubrögð sem tryggja endingu verka. Lítið Mál kappkostar að nota alltaf bestu fáanlegu efni sem til eru á markaðnum og bjóða upp á toppvinnu á samkeppnishæfu verði.
Þegar unnið er að endurbótum á húsnæði er lögð mikil áhersla á stundvísi, fagleg vinnubrögð og góða umgengni. Verkefni eru unnin í samstarfi við verkkaupa og miða að því að uppfylla þarfir hans og óskir.
Lítið Mál tekur að sér tilboðsgerð fyrir almenna málningarvinnu, múrviðgerðir, gluggaviðgerðir og ástandsmat að innan sem utan.
Nánari upplýsingar veitir Sigurður í síma 896-5758 og upplýsingar eru einnig á vefsíðunni www.litidmal.com.